Tilkynning 09.12.09

Suðurlandsvegur frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss

Vegagerðin hefur tilkynnt til athugunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Suðurlandsveg frá Hveragerði og austur fyrir Selfoss.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 11. desember 2009 til 29. janúar 2010 á eftirtöldum stöðum: Á Bókasafninu í Hveragerði, Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu og Vegagerðarinnar.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir.  Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 29. janúar 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík.  Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.


(-) til baka

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi