Tilkynning 12.07.10

Þorlákshafnarlínur 2 og 3

Landsnet hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frummatsskýrslu um Þorlákshafnarlínur 2 og 3, 220 kV, í sveitarfélaginu Ölfusi.

Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 15. júlí til 27. ágúst 2010 á eftirtöldum stöðum: Skipulagsstofnun, Þjóðarbókhlöðunni, bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Ölfuss og Bæjarbókasafni Ölfuss í Þorlákshöfn. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Eflu, Landsnets og Skipulagsstofnunar.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 27. ágúst 2010 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum.


Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 106/2000 m.s.b.


(-) til baka

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi