Allar fréttir

15.07.2010  EFLA í samstarfi um orkuvinnslu

Þriðjudaginn 6. júlí var undirritað samkomulag milli verkfræðistofunnar EFLU og Energy Institut Hrovje Pozar (EIHP) í Króatíu um samstarf í jarðhitamálum og öðrum orkumálum í landinu og á öðrum svæðum á Balkanaskaga.

(+) nánar

09.07.2010  Nýtt hátæknisjúkrahús: Teymi með EFLU sigrar í samkeppni

Eftir forval fimm teyma hefur farið fram hönnunrasamkeppni fyrir nýjan Landspítala-Háskólasjúkrahús. Úrslit hennar er nú kunn og bar teymi sem EFLA er ábyrgðaraðili fyrir sigur úr býtum.

(+) nánar

01.07.2010  EFLA á Norðurlandi: Endurbætur á sorphirðu

EFLA á Norðurlandi hefur nýverið lokið við gerð útboðsgagna, umsjón með útboði og samningsgerð vegna sorphirðu í sveitarfélaginu Langanesbyggð. Langanesbyggð stefnir að mjög góðum árangri við flokkun og endurvinnslu á úrgangi

(+) nánar

30.06.2010  Brautryðjendstarf á sviði vistvænna bygginga

Í lok júní var Snæfellsstofa (Gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs að Skriðuklaustri) opnuð við hátíðlega athöfn. Í byggingunni (700 fermetrar) er margvíslega aðstaða og vel unnin sýning, "Veraldarhjólið", um austursvæði þjóðgarðsins

(+) nánar

22.06.2010  Búðarhálsvirkjun framundan

Síðla í júní auglýsti Landsvirkjun eftir tilboðum í mannvirkjagerð vegna Búðarhálsvirkjunar. Útboðið tekur til um 60% heildarverksins og skiptist í þrjá hluta; stíflugerð og tengd verk, jarðgangagerð og byggingu stöðvarhúss.

(+) nánar

26.05.2010  Nýr öflugur samstarfsvettvangur

Forystumenn átta leiðandi fyrirtækja í jarðhitanýtingu hér á landi skjalfestu í dag þann ásetning sinn að starfa saman að jarðvarmaverkefnum erlendis. Orkuveita Reykjavíkur (OR), sem er eitt stærsta jarðhitafyrirtæki heims, leiðir samstarfið og aðild að því eiga einnig þrjár stærstu verkfræðistofur landsins – Efla, Mannvit og Verkís – Jarðboranir, Íslenskar orkurannsóknir og arkitektastofurnar T.ark Teiknistofa og Landslag. Markmið samstarfsins er að opna fyrirtækjunum nýjar leiðir til að koma þekkingu sinni á markað því eftirspurn eftir reynslu á öllum sviðum jarðhitanýtingar fer hratt vaxandi um víða veröld.

(+) nánar

20.05.2010  EFLA: Aðstoðað 8 af 13 fyrirtækjum með ISO 14001 vottun

Þann 7. maí tók Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkurborgar formlega upp vottað ISO 14001 umhverfisstjórnunarkerfi. Sviðið var þar með fyrsta opinbera stofnunin til þess að ná slíkum áfanga

(+) nánar

18.05.2010  EFLA hlýtur styrk úr Umhverfissjóði Orkuveitu Reykjavíkur

EFLA hefur fengið úthlutað styrk til að sinna verkefni sem nefnist Yfirborðsmeðhöndlun mannvirkja til að auðvelda gróðurframvindu. Markmið verkefnisins er að prófa með hvaða hætti meðhöndla megi yfirborð steinsteyptra

(+) nánar

17.05.2010  Aftur á Hnúkinn

Nýr hópur frá EFLU kleif Hvannadalshnúk snemma í maí. Jöklafararnir hrepptu gott veður og fengu að launum það frábæra útsýni sem þeir einir njóta er standa á hvíta kollinum í góðu eða þokkalegu skyggni

(+) nánar

20.04.2010  EFLA í samstarfi við SLWP í Abu Dhabi

EFLA verkfræðistofa er með verkefni í flestum heimsálfum sem stendur. Eitt af þessum erlendu verkefnum eru framkvæmdir við byggingu og gangsetningu risa álvers í Abu Dhabi. Álverið ber nafnið EMAL – Emirates Aluminium og stefnt er að það verði stærsta einstaka álver í heimi.

(+) nánar

18.04.2010  Athugun á þörf a lagningu Dalsbrautar

Samkvæmt gildandi aðalskipulagi Akureyrar er gert ráð fyrir tengibraut milli Miðhúsabrautar og Þingvallastrætis, Dalsbraut, í beinu framhaldi af núverandi Dalsbraut. EFLA (Samgöngur) tók að sér að vinna skýrslu fyrir Akureyrarbæ með að markmiði að athuga þörf fyrir þennan hluta Dalsbrautar

(+) nánar

09.04.2010  EFLA: Skýrsla fyrir Iðnaðarráðuneytið

Orkumálaráðgjöf EFLU hefur samið skýrslu fyrir Iðnaðarráðuneytið þar sem teknar eru saman upplýsingar um þróun raforkuverðs á almennum markaði hér á landi frá því raforkulögin frá 2003 tóku gildi í janúar 2005 og fram til janúar 2010

(+) nánar

25.03.2010  Rýmingaráætlunin EFLU vegna eldgosa og hlaupa.

Veturinn 2005-2006 var unnið á EFLU að rýmingaráætlun vegna eldgosa og hlaupa frá vestanverðum Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli. Rýmingaráætlunin var byggð á skýrslu sérfræðinga um "Hættumat vegna eldgosa og hlaupa frá verstanverðum Mýrdalsjökli og Eyjafjallajökli". Gerð rýmingaráætlunarinnar var unnin í samstarfi og undir verkstjórn Almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, sýslumenn og lögreglu í héraði, Neyðarlínuna, Veðurstofu Íslands, Verkfræðistofuna Hnit og Verkfræðistofuna Vatnaskil árið 2005-2006.

(+) nánar

23.03.2010  EFLA Akureyri: Vel heppnuð kynning

Magnús Bjarklind og Árni Bragason frá Umhverfissviði EFLU héldu fyrir skömmu kynningu á Akureyri um rekstur grænna svæða. Fundurinn var svokallaður "súpufundur" á Greifanum, sem Kristján Kristjánsson skrifstofa EFLU á Akureyri skipulagði. Umfjöllunarefnið var markvissari vinnubrögð í rekstri grænna svæða og tillögur að sparnaði

(+) nánar

22.03.2010  EFLA styður Hönnunarmars 2010

FÉLAGIÐ er spennandi áfangastaður á HönnunarMars í ár. Þetta er samstarfsverkefni Arkitektafélags Íslands, Félags húsgagna- og innanhússarkitekta og Félags íslenskra landslagsarkitekta, sem sameinast undir einu þaki og kynna fyrir gestum og gangandi fjölbreytileika fagfélaganna.

(+) nánar

15.03.2010  HARPA klæðist glerhjúp

Sífellt fleiri vinna við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu og bílakjallara sem þar verður. Í byrjun mars 2010 voru 330 manns að störfum auk þeirra sem vinna að ýmsum verkum utan byggingastaðarins. Uppsteypu Hörpu er lokið og fóru til verksins um 29.000 rúmmetrar af steypu. Steypumót eru 95.000 fermetrar og járnalögn vegur 5.000 tonn

(+) nánar

11.03.2010  Verkfræðistofan EFLA flytur á árinu

Verkfræðistofan EFLA og Reitir fasteignafélag hafa skrifað undir samning um leigu á 3.800 fermetra húsnæði í endurnýjuðum skrifstofugörðum Reita að Höfðabakka 9 - þar sem Tækniskólinn og síðar Háskólinn í Reykjavík voru áður til húsa. Þangað flytur EFLA starfsemina á komandi sumri af fjórum starfsstöðvum í höfuðborginni

(+) nánar

06.03.2010  Hvað eru margir naglar í súpunni ?

EFLA tók þátt í sýningunni VIÐHALD 2010 sem stóð dagana 6. og 7. mars í Smáralind og tók til viðgerða og endurnýjunar húseigna og annarra mannvirkja eins og heitið bendir til. Bás EFLU vakti athygli fyrir laglega hönnun og rjúkandi naglasúpu

(+) nánar

26.02.2010  Vistvæn byggð: EFLA stofnaðili

Kynningarfundur á Vistvænni byggð er að baki. Á fundinum var farið yfir tildrög samtakanna og tilgang og markmið þeirra (sjá frétt frá 17. feb.). Helga Jóhanna Bjarnadóttir hjá EFLU rakti þróun vistvænnar hönnunar og vottunar hér á landi

(+) nánar

24.02.2010  EFLA kynnir viðhald fasteigna

EFLA tekur þátt í sýningunni VIÐHALD 2010 sem verður haldin 5. og 6. mars í Vetrargarðinum í Smáralind. Fasteigna- og viðhaldssvið fyrirtækisins mun kynna sviðið og fræða gesti um hvernig staðið skuli að viðhaldsframkvæmdum og hvað ber að varast og útskýrir eftirlit með slíkum framkvæmdum

(+) nánar

22.02.2010  Verðlaun Steinsteypufélagsins

Steinsteypufélagið hefur veitt göngubrúnum yfir Hringbraut í Reykjavík Steinsteypuverðlaunin 2010. Forseti Íslands afhenti fulltrúum verkkaupa, hönnuða og verktaka viðurkenninguna að loknum steinsteypudeginum 2010. EFLA sá um verkfræðilega hönnun mannvirkisins

(+) nánar

19.02.2010  EFLA á Framadögum 2010

Framadagar 2010 fóru fram með pompi og prakt 10. febrúar sl. í Háskólabíói. Fjöldi fyrirtækja nýtti þetta kjörna tækifæri til þess að styrkja tengsl sín við háskólasamfélagið og var EFLA engin undantekning. Að sama skapi gripu háskólanemarnir gæsina og kynntu sér starfsemi hinna fjölmörgu fyrirtækja

(+) nánar

17.02.2010  Vistvæn byggð stofnuð

Stofnfundur Vistvænnar byggðar – Vettvangs um sjálfbæra þróun í mannvirkjagerð verður haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl.16 í ráðstefnusal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1. Kynningarfundur án skuldbindinga verður haldinn sama dag, á sama stað kl.15. Fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum er boðið að taka þátt í mótun sjálfbærrar þróunar manngerðs umhverfis á Íslandi.

(+) nánar

16.02.2010  Styrkur til rannsókna

Landsvirkjun úthlutaði styrkjum til margra verkefna 11. febrúar sl., EFLA hlaut styrk úr flokki B er nefnist Rannsóknir á sviði umhverfis- og orkumála. Um er að ræða framhaldsstyrk vegna verkefnisins "Meðhöndlun og endurheimt staðargróðurs á framkvæmdasvæðum"

(+) nánar

05.02.2010  EFLA kemur víða við

Sérfræðingur EFLU er nýkominn úr vinnuferð frá Egyptalandi. EFLA vann þar að verkefni fyrir bandarískt fyrirtæki ALU-CUT International en það seldi egypska álfyrirtækinu EGYPTALUM (í ríkiseign) sérfhæfðan vélbúnað

(+) nánar

03.02.2010  Jökulmæling

Í lok nóvember sl. fóru Páll Bjarnason frá Verkfræðistofu Suðurlands ásamt Sveini Svavarssyni og mældu stöðu Gígjökuls, í fylgd Ármanns Inga sem lagði til fjórhjól. Gígjökull skríður til norðurs úr Eyjafjallajökli og hefur Jöklarannsóknafélagið o.fl. fylgst með

(+) nánar

03.02.2010  EFLA kynnir viðhald fasteigna

EFLA tekur þátt í sýningunni VIÐHALD 2010 sem verður haldin 5. og 6. mars í Vetrargarðinum í Smáralind. Fasteigna- og viðhaldssvið fyrirtækisins mun kynna sviðið og fræða gesti um hvernig staðið skuli að viðhaldsframkvæmdum

(+) nánar

02.02.2010  Iðnaðarráðherra heimsækir EFLU

Iðnaðarráðherra Katrín Júlíusdóttir kom í heimsókn í höfuðstöðvar EFLU að Suðurlandsbraut 4A, fimmtudaginn 28 febrúar. Ráðherra og fylgdarlið kynntu sér starfsemina og var enn fremur rætt um mögulegt samstarf við ráðuneytið

(+) nánar

29.01.2010  Jarðhitaverkefni í Tyrklandi

Í október 2009 var ráðgjafarsamningur á milli BM Muhendislik og Turkison undirritaður í Tyrklandi. Turkison er dótturfyrirtæki EFLU og hefur aðsetur í Ankara í Tyrklandi. Ný eignaraðild Íslenskra orkurannsókna í fyrirtækinu er á döfinni. EFLA, Turkison og ÍSOR vinna saman að ráðgjöfinni fyrir BM á svonefndu Ortaklar-jarðhitasvæði

(+) nánar

27.01.2010  HR: Stórum áfanga náð

Sem kunnugt er hefur EFLA annast framkvæmdaeftirlit við nýbyggingu Háskólans í Reykjavík. Nú fyrir skömmu flutti Háskólinn í Reykjavík starfsemi sína í nýja húsnæðið við Nauthólsvík.

(+) nánar

26.01.2010  EFLA og Launafl: Samstarf fyrir austan

Þann 24.nóvember sl. kynntu Launafl og EFLA samstarf á svið hönnunar og teiknivinnu fyrir Fjarðaáli. Launafl ehf (LA) var stofnað árið 2006 af 6 öflugum iðnfyrirtækum á Austurlandi

(+) nánar

23.01.2010  EFLA eflir Faust

Nú nýverið var forvitnileg íslensk leikgerð hins sígilda verks Faust eftir Goethe frumsýnd í Borgarleikhúsinu. Vegna víðáttumikillar leikmyndar og óvenjulegra leikbragða þurfti verkfræðilega ráðgjöf við uppsetningu sýningarinnar

(+) nánar

22.01.2010  EFLA og hótel við Hörpu

EFLA er ráðgjafi Situs ehf. við að koma upp 4-5 stjörnu hóteli við Tónlistarhúsið Hörpu í Austurhöfninni í Reykjavík

(+) nánar

20.01.2010  EFLA: Tvær háspennulínur í Póllandi

EFLA hefur áður haft verkefni með höndum í Póllandi. Nú vinnur markaðssvið EFLU, sem heitir Orka og veitur, að hönnun tveggja háspennulína í Pólland með dótturfyrirtæki EFLU, Ispol í borginni Lodz.

(+) nánar

18.01.2010  EFLA athugar orkuöflun í Vopnafirði

Verið að hefja frumathugun á hagkvæmni þess að búa til hitaveitu fyrir byggðakjarnann í Vopnafirði. Hefur EFLU og Jarðfræðistofunni Stapa verið falið að vinna verkið. Rafmagn er nú aðallega notað til upphitunar á staðnum.

(+) nánar

15.01.2010  EFLA í Íran

Sérfræðingar EFLU koma víða við. Hrafn Stefánsson frá Iðnaðarsvði EFLU dvaldist í Íran lungann úr nýliðnum nóvember og fram undir miðjan desember. Iðnaðarsviðið kemur að vinnu hreinsivirki í nýju 150.000 tonna álveri í eigu heimamanna

(+) nánar

12.01.2010  Handbók knattspyrnuvalla

Verkfræðistofan EFLA hefur gefið út handbókina „Knattspyrnuvellir – umhirða og viðhald - Almennar leiðbeiningar um helstu umhirðu- og viðhaldsverkefni á knattspyrnuvöllum“

(+) nánar

29.12.2009  EFLA og vistvæn vottun bygginga

Mannvirkjagerð fer ekki varhluta af áberandi þróun á öllum sviðum samfélags okkar. Leitað er betri lausna sem draga úr orkunotkun og auðlindanýtingu. Vottunarkerfi á borð við BREEAM kerfið leiðbeinir mannvirkjagerð í átt að vistvænni og sjálfbærari mannvirkjum

(+) nánar

29.12.2009  EFLA og vistvæn vottun bygginga

Mannvirkjagerð fer ekki varhluta af áberandi þróun á öllum sviðum samfélags okkar. Leitað er betri lausna sem draga úr orkunotkun og auðlindanýtingu. Vottunarkerfi á borð við BREEAM kerfið leiðbeinir mannvirkjagerð í átt að vistvænni og sjálfbærari mannvirkjum.

(+) nánar

18.12.2009  HR: Takmarkið nálgast

EFLA hefur séð um verkeftirlit við hina glæsilegu nýbyggingu Háskólans í Reykjavík við rætur Öskjuhlíðar, skammt frá Nauthólsvík. Undanfarið hafa um 300 manns unnið við að ljúka fyrri áfanga nýbyggingarinnar. Það styttist í að kennsla flytjist þangað en ráðgert er að hún hefjist 11. janúar næstkomandi.

(+) nánar

10.12.2009  EFLA styrkir Mæðrastyrksnefnd og Samhjálp

Að venju sendir EFLA aðeins út rafrænar jóla- og nýárskveðju til viðskiptavina og samstarfsaðila og er hún hönnuð hér innanhúss. Um leið leggur fyrirtækið fram fé til þeirra sem láta gott af sér leiða í samfélaginu.

(+) nánar

26.11.2009  EFLA í Hollandi

Starfsmenn EFLU hafa unnið að því að gangsetja skautsmiðju fyrir Aldel í Hollandi. Vélarnar voru hannaðar af Bergen Group Iðntækni en EFLA sá um forritun fyrir tölvuvædd stýrikerfi í sjö af átta vélum sem í skautsmiðjunni eru

(+) nánar

24.11.2009  Forsetahjónin heimsækja EFLU í Abu Dhabi

Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff, forsetafrú heimsóttu Íslendinga sem eru að störfum í EMAL álverinu í Abu Dhabi þann 23.nóvember sl. Eigendur EMAL tóku á móti forsetanum ásamt Youssef L. Wahba sem leiðir verkefnið fyrir hönd eigendanna. Hann er Íslendingum að góðu kunnur því

(+) nánar

23.11.2009  Gegnumbrot í Óshlíðargöngum

EFLA hefur séð um framkvæmdaeftirlit í Óshlíðargöngum, á leiðinni milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur. Mánudaginn 15. nóvember kl. 13:30 var brotið í gegn í göngunum. Einungis 6 metrar voru eftir ógrafnir og átti að sprengja stuttan kafla en skilja eftir 4 metra þykkt haft

(+) nánar

20.11.2009  Vistferilsgreining á endurvinnslu á Suðurlandi

EFLA vann vistferilsgreiningu (enska: Life Cycle Assessment ) fyrir Sorpstöð Suðurlands þar sem borin voru saman gróðurhúsaáhrif mismunandi meðhöndlunar úrgangsflokksins "dagblöð og tímarit" sem myndast á starfssvæði sorpstöðvarinnar. Niðurstöður verkefnisins voru þær að flokkun dagblaða og tímarita til endurvinnslu getur ótvírætt dregið úr gróðurhúsaáhrifum

(+) nánar

13.11.2009  Sólskinssaga frá Dubai

Starfsmenn EFLU hafa dvalið við iðnaðarráðgjöf í Dubai, oft með fjölskyldum sínum. Arnór Gauti Brynjólfsson heitir ungur drengur sem gengur þar í skóla en gerir meira en það. Hann æfir fótbolta í Dubai með Manchester United Akademíunni

(+) nánar

02.11.2009  EFLA í Mósambík

Tveir starfsmenn EFLU, þeir Helgi Már Hannesson og Kjartan Gíslason, eru komnir til borgarinnar Tete í Mósambík á vegum fyrirtækisins. Þar munu þeir vinna næstu tvo mánuði sem ráðgjafar fyrir fyrirtækið ETDE í Frakklandi vegna rafvæðingar Tete

(+) nánar

30.10.2009  Hjólreiðar EFLDAR

Í umhverfisstefnu EFLU segir m.a.: Brýnt er að minnka orkunotkun í samgöngum og minnka um leið losun lofttegunda og úrgangsefna vegna bruna jarðefnaeldsneytis. EFLA hvetur því starfsmenn :

(+) nánar

28.10.2009  EFLA: Grænt bókhald fyrir árið 2008

EFLA hefur gefið út ársskýrslu 2008 um grænt bókhald. Hún tekur mest til starfsemi Línuhönnunar, sem myndaði EFLU með þremur öðrum fyrirtækjum seint á því ári. Fyrir árið 2008 voru sett mælanleg markmið

(+) nánar

26.10.2009  Viðurkenning til EFLU

Vegagerðin hefur um nokkurt skeið veitt viðurkenningu fyrir gerð og frágang mannvirkja. Mannvirkið sem hlaut viðurkenninguna að þessu sinni er: Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut. Um hönnun sáu Efla hf. og Stúdíó Granda ehf.

(+) nánar


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi