Kröfur samtímans kalla á markvissa vinnu að umhverfismálum við allt skipulag, framkvæmdir og rekstur. Umhverfissvið EFLU veitir áreiðanlega og faglega ráðgjöf í umhverfismálum, skipulagsmálum, náttúruvernd, í jarðtækni og jarðfræði og landupplýsingum. Umhverfissviðið er afar þverfaglegt og þjónustuflokkarnir margir og mismunandi, allt frá vistferilsgreiningum (LCA) og meðhöndlun úrgangs til náttúruverndaráætlana, söfnunar landfræðilegra upplýsinga, aðstoðar við gerð skipulagsáætlana og mats á umhverfisáhrifum eða ráðgjöf við jarðvinnu og jarðgangagerð.
Starfsfólk þessa fjölmenna markaðssviðs hefur áralanga reynslu. Við nýtum okkur nýjustu hugbúnaðarlausnir og leggjum metnað í rannsóknir samhliða ráðgjöf til að tryggja fagleg vinnubrögð og góðar lausnir jafnframt því að leita samstarfs við innlenda og erlenda sérfræðinga þegar þörf er á.
Ráðgjöfin er styrkt með rekstri rannsóknarstofu EFLU í umhverfisvöktun og mælingum og svo rannsóknarstofu í jarðtækni sem einnig sinnir sérhæfðum rannsóknum.
Vel menntaðir sérfræðingar Umhverfissviðs í verkfræði, tækni, jarðfræði, efnafræði, landfræði, náttúrufræði, umhverfisfræði og skipulagsfræðum, margir eftirsóttir við kennslu á háskólastigi, hafa til að bera yfirgripsmikla þekkingu. Hundruð verkefna sýna að þjónustan hefur verið eins og að er stefnt.
Markaðssviðstjóri
Helga Jóhanna Bjarnadóttir.
Sími 412 6109, tölvupóstfang: helga.j.bjarnadottir@efla.is