VIÐSKIPTAÞRÓUN

Viðskiptaþróunarsvið er stoðsvið fyrir framkvæmdastjórn og markaðssvið fyrirtækisins og fyrirtæki tengd EFLU á markaði. Sviðið starfar innanlands og á erlendum mörkuðum í samræmi við stefnu fyrirtækisins hverju sinni.

Starfsemi sviðssins miðast við að meta, virkja, bæta og hrinda í framkvæmd álitlegum viðskiptahugmyndum sem koma fram innan samsteypunnar, fyrirtækinu og tengdum fyrirtækjum til framdráttar. Starfsemin skal um leið stuðla að innri uppbyggingu og auknum styrk á innanlandsmarkaði ekki síður en vexti út á við, og opna og þróa viðskipti á nýjum mörkuðum.

Meginmarkmið er að styrkja núverandi starfsemi samsteypunnar og koma upp nýjum starfsstöðvum innan Evrópu, allt frá Norðurlöndum og Rússlandi suður til Tyrklands, með höfuðáherslu á grunngerðarkerfi og virkjanir. Er þá meðal annars átt við hefðbundna ráðgjöf um hönnun, verkefnisstjórnun og verkeftirlit. Verkefnaþróun við virkjun endurnýjanlegra orkuauðlinda er einnig á borði viðskiptaþróunarsviðs. Í henni felast hugmyndir að virkjun auðlinda, undirbúningsvinna og hönnun, tengslamyndun auk þátttöku í og eignaraðild að verkefnum.

Stoðssviðsstjóri
Hafsteinn Helgason
Símar 412 6102, 665 6102, fax 412 6001, tölvupóstfang: hafsteinn.helgason@efla.is

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi