Á vistvænum vegum
EFLA Á VISTVÆNUM VEGUM
Umhverfisstjórnun
EFLA þróast og starfar á vistvænan hátt. Af fyrirtækjunum sem mynda EFLU hefur Línuhönnun starfað samkvæmt vottuðu umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001) frá því í byrjun árs 2006. Það merkir að tekið hefur verið skipulega á umhverfismálum í daglegum í rekstri jafnt sem í allri ráðgjöf. Línuhönnun fékk Umhverfisverðlaun umhverfisráðuneytisins, Kuðunginn árið 2006. Sameinað fyrirtæki EFLU mun með sama hætti starfa eftir umhverfisstjórnunarkerfi.
Með vottaðri umhverfisstjórnun EFLU er til staðar stjórnkerfi til að greina og mæla helstu umhverfisáhrif og þætti í starfseminni sem valda umhverfisáhrifum og einnig stjórnkerfi til að stýra og vakta umhverfisáhrif vegna þessara þátta. Meðal vaktaðra umhverfisþátta í rekstri og innra starfi eru: Notkun á rafmagni, heitu og köldu vatni, pappír og prentbleki og svo akstur starfsmanna á vegum vinnunnar, úrgangur (flokkun úrgangs til endurvinnslu og eyðingar), hættuleg efni (listi yfir öll efni, skilgreind meðferð, geymsla og förgun, stefnumótun um að lágmarka notkunina). Í sjálfri ráðgjafarþjónustunni eru unnir gátlistar yfir helstu umhverfisáhrif fyrir hverja tegund ráðgjafarverkefna og eftir þeim unnið til að lágmarka umhverfisáhrifin. Undirverktakar fá leiðbeiningar um umhverfisstjórnun þegar við á. Unnið er yfirlit yfir árangur í umhverfismálum, svonefnt grænt bókhald fyrir helstu umhverfisþætti EFLU ár hvert.
Ráðgjöf í umhverfismálum
EFLA býður fram víðtæka ráðgjöf í umhverfismálum. Innan fyrirtækisins starfar öflugt markaðssvið (Umhverfissvið) sem skiptist í 5 kjarnasvið (Umhverfismál, Náttúruvernd, Skipulagsmál, Jarðtækni og jarðfræði og Landupplýsingar). Þjónustan tekur til flestra þátta umhverfismála svo sem vistvænnar hönnunar bygginga, útlögn háspennulína svo þær fari vel í landi, hvernig minnka megi biðtíma og loftmengun í samgöngum, hönnun hjólreiðabrauta, vötkun á frárennsli sveitarfélaga og fyrirtækja, vöktun á gasi frá urðunarstöðum og loftmengun í jarðgöngum, ráðgjöf um vistvæn innkaup fyrirtækja, uppbyggingu vottaðra umhverfisstjórnunarkerfa hjá fyrirtækjum og sveitarfélögum, vistferilsgreiningar fyrir meðhöndlun og endurvinnslu úrgangs og náttúruverndaráætlanir, svo fátt eitt sé nefnt. Fyrirtækið efnir líka til rannsókna eða þróunarverkefna svo sem nýtingu úrgangsafurða í fiskvinnslu í verðmætar vörur, nýjar aðferðir til að meta sjónræn áhrif framkvæmda, lágmörkun orkunotkunar í atvinnuhúsnæði, umhverfisáhrif vegalýsinga og annarrar utanhússlýsingar og rannsókn á vistferilskostnaði bygginga (LCC).