Fróðleiksmolar um umhverfismál
*Nánast allt lagnakerfi Reykjavíkurborgar er úr steinlögnum og algengasta þvermál lagna er 25 cm. Samt hafa ótrúlegustu hlutir fundist í holræsakerfinu, m.a. reiðhjól. Fráveitukerfi Reykjavíkur er nærri 1.000 km langt.
*Sorpmyndun heimila á Íslandi í dag er um 500 kg/ári fyrir hvern íbúa. Um 2/3 af öllu sorpi kemur frá rekstri og iðnaði en aðeins 1/3 frá heimilum.
*Endurvinnsluhlutfall heimilissorps á Íslandi er um 28% en meðaltalið innan Evrópusambandsins er í kringum 36%. Hollendingar eru duglegastir með um 64% og Portúgalar eru „slappir” með aðeins 3,5% endurvinnsluhlutfall.
*Einn bensínknúinn bíll losar jafn mikið af CO2 og 113 metan-fólksbílar.
*Þú dregur úr gróðurhúsaáhrifum um 0,8 kg CO2 fyrir hvert kg af dagblöðum og tímaritum sem þú setur í endurvinnslu.
*Kaldavatnsnotkun á Íslandi í dag er um 160 lítrar/íbúa en í Þýskalandi um 80 lítrar/íbúa. Heildar kaldavatnsnotkun á Íslandi ( með notkun í fyrirtækjum) er um 500 lítrar/íbúa.
*Allt drykkjarhæft vatn jarðar kemst fyrir í teningi með hliðarlengdina 154 km, það er u.þ.b. fjarlægðin frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal.
*Bíll í lausagangi eyðir 1 - 1,5 lítrum af eldsneyti á klukkustund ! Einn lítri af bensíni dugar smábíll 15 km í blönduðum akstri ef eyðslan er tæpir 7 lítrar/100km.
*Til að afla 1 kg af fiski skrapar troll um 1000 m2 af sjávarbotni og við togveiðar eru losuð tæplega 2 kg af CO2 út í andrúmsloftið fyrir hvert fiskkíló.
*Friðlýst svæði á jörðinni eru ríflega 100 þúsund að tölu og gegna m.a. því hlutverki að varðveita fjölbreytni lífríkisins. Friðlýst svæði á Íslandi eru nú 91.
*Látrabjarg er mesta fuglabjarg við Norður-Atlantshaf og er alþjóðlega mikilvæg sjófuglabyggð. Þar er stærsta álkubyggð í heimi en aðrar lykiltegundir eru fýll, rita, langvía og stuttnefja.
*Mest allt lífríki á þurrlendi Íslands hefur að öllum líkindum borist til landsins eftir að síðasta kuldaskeiði ísaldar lauk fyrir um 11.500 árum.
*Tölvuskjár á að vera ca. 50-70 cm frá andliti. Efsta brún skjás á að vera í augnhæð þannig að notandinn horfi 15° niður á miðjan skjá. Áríðandi er að hafa tölvuskjá í réttri hæð til forðast álagseinkenni, m.a. á háls og herðasvæði. Miðað er við að augnhæð nemi við neðri brún efsta hluta skjárammans.