Ljóstækni og lýsingahönnun

Þá sagði Guð: “Verði ljós“. Og það varð ljós. Frá ómunatíð hefur mannskepnan litið á ljósið sem sjálfsagt fyrirbæri. Sólin kemur upp að morgni og sest að kveldi. Dagsbirtan er síbreytileg frá morgni til kvölds og á milli árstíða.

Orkugeislar sólar eru ein forsenda lífs á jörðinni. Án ljós væri ekkert líft a.m.k. ekki í þeirri mynd sem við þekkjum. Við beislun eldsins var ljós frá eldi notað til að lýsa upp náttmyrkrið og varðeldar hjálpuðu til við að skapa öryggi að næturlagi gegn aðsteðjandi ógnunum. Jafnframt voru híbýli manna og önnur afdrep upplýst og upphituð með birtu og yl frá eldi.

Í nútímanum er raflýsing hluti af tilverunni. Þegar skyggja tekur þykir okkur ekkert sjálfsagðara en að „kveikja ljós“ og lýsa upp umhverfið, hús og hýbýli. Hvernig það er gert skiptir máli. Rétt lýsing er mikilvæg. Með réttri lýsingu má skapa rétta stemningu, vellíðan og öryggi. Jafnframt þarf raflýsing að vera umhverfisvæn og hagkvæm í rekstri.

Hér kemur EFLA til sögunar. Á rafkerfa- og lýsingarsviði starfa reyndir og vel menntaðir lýsingarhönnuðir með langa reynslu af hönnun lýsingar.
Við höfum ekki gleymt upprunanum. Dagsbirtan skiptir miklu máli við hönnun lýsingar og við kappkostum að nýta dagsbirtuna í bland við raflýsingu. Þar kemur góð samvinna við arkitekta og verkkaupa til sögu, en líka víðtæk þekking okkar á ljósgjöfum, tæknilegum útfærslum og lausnum. Við fylgjumst náið með þróun og nýjungum á sviði ljósgjafa og lýsingatækni.

Á síðastliðnum 25 árum hafa starfsmenn EFLU hannað lýsingu í vel flestar gerðir mannvirkja jafnt utan- sem innandyra: Hýbýli, skóla, skrifstofur, vistheimili, sjúkrastofnanir, verslanir, listasöfn, leikhús, íþróttamannvirki, hafnir, samgöngumannvirki, auglýsingaskilti, skrautlýsingar o.s.frv. Hvert verkefni og farsæl lausn þess skiptir okkur miklu máli.

Nánari upplýsingar hjá:

Davíð Eysteinn Sölvason
Sími 412 6065, tölvupóstfang: david.eysteinn.solvason@efla.is


Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi