Hluti þessarar síðu verður opinn þeim sem áhuga hafa á að fylgjast með framvindu utanhúss-viðgerða á skólanum.
Sumarið 2003 verður unnið að steypu- og gluggaviðgerðum á Kvennaskólanum og er það fyrsti hluti fyrirhugaðra utanhússviðgerða. Meðal annars verða svipmiklar svalir framan á húsinu brotnar niður og endurgerðar. Gluggar verða lagfærðir og endurnýjaðir til samræmis við upprunalegt útlit. Einnig verða allir útveggir múrhúðaðir og málaðir til samræmis við það sem áður var, þ.e. 1910-1940.
Verkfræðistofan Línuhönnun hf. hefur séð um úttektir, áætlanir, hönnun og gerð verklýsinga fyrir verkið. Línuhönnun mun einnig sjá um verkeftirlit og kostnaðareftirlit með framkvæmdum í samráði við Fasteignir ríkissjóðs.
Framkvæmdir við utanhússviðgerðir eru á vegum Fasteigna ríkissjóðs og er Einar Haraldsson verkefnisstjóri.
Nýtt efni - lokað
- 23.05.07 -
Kvennaskolinn 09 verkfu...
- 23.05.07 -
Kvennaskolinn 1 verkfun...
- 23.05.07 -
Kvennaskolinn 10 verkfu...
- 23.05.07 -
Kvennaskolinn 2 verkfun...
- 23.05.07 -
Kvennaskolinn 3 verkfun...