Hluti þessarar síðu verður opinn þeim sem áhuga hafa á að fylgjast með endurbótum og viðgerðum utanhúss á Sóleyjargötu 1, Staðastað.
Sumarið 2005 verður unnið að viðgerðum á Sóleyjargötu 1. Verkið felst í að framkvæma staðbundnar steypuviðgerðir á veggjum. Viðgerðir á gluggum, hurðum og tréverki. Endurnýjun þakglugga. Endursteypa frostskemmdar svalir, tröppur, reykháfa og kanta. Endurnýjun þakrenna steinskífa, pappa og ásetulista á þaki. Að loknum viðgerðum og endurnýjun á þakefni er gert ráð fyrir að mála húsið.
Línuhönnun hf. verkfræðistofa hefur séð um úttektir, áætlanir, hönnun og gerð verklýsinga fyrir verkið. Línuhönnun mun einnig sjá um verkeftirlit og kostnaðareftirlit með framkvæmdum í samráði við byggingadeild forsætisráðuneytisins.
Áætluð verklok eru í september 2005 en þessi verkefnavefur verður áfram opinn um óákveðinn tíma fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnið.
Nýtt efni - lokað
- 23.05.07 -
Soleyjargata 1-verkaaet...
- 23.05.07 -
Soleyjargata 1- utbod m...
- 23.05.07 -
20051003-Soleyjargata 1...
- 23.05.07 -
20051005-Soleyjargata 1...
- 23.05.07 -
20051005-Soleyjargata 1...