Áliðnaður
Í umfangsmiklum áliðnaði á Íslandi og í öðrum löndum er þörf á sérhæfðri ráðgjöf. EFLA hefur komið upp kjarnasviði sem sinnir hönnun og þjónusta á raf- og stýrikerfum í álver og önnur stóriðjuver. Við byggjum á langri reynslu við ólík verkefni, allt frá hönnun stjórnskápa og lagna að forritun og innkeyrslu búnaðar. Auk íslenskra stóriðjuvera höfum við þjónustað álver og málmiðjuver í Noregi , Svíþjóð, Argentínu, Egyptalandi, Oman, Dubai, Abu Dhabi, Venesúela og Kína, oft í samstarfi við erlend fyrirtæki.
Sviðið hefur yfir að ráða fjölda sérfræðinga í raf- og stýrikerfum álvera. Þekking þeirra á sviði rafstýrikerfa og sjálfvirkni er umfangsmikil. Við sköpum okkur sérstöðu með því að leggja okkur fram við að ná yfirsýn og skilningi á virkni vinnsluferla áður en farið er af stað við hönnun og forritun. Þessi nálgun hjálpar okkur við að hámarka virkni kerfanna og hún leiðir einnig af sér að iðulega eru það forritarar stýrikerfanna sem hafa bestu yfirsýnina þegar kerfin eru komin í rekstur.
Verkefni Áliðnaðarsviðs og reynsla nær til flestra kerfisþátta í álverum og öðrum stóriðjuverum. Við höfum unnið að raf- og stýrikerfum fyrir loftveitur, löndunar- og þjónustukrana, ýmis þéttflæðikerfi og lofthreinsivirki, svo það helsta sé nefnt.
Sviðsstjóri
Birgir Sigurþórsson
Sími 412 6046, tölvupóstfang: birgir.sigurthorsson@efla.is