Matvælaiðnaður

EFLA hefur á að skipa Matvælaiðnaðarsviði sem veitir þjónustu við ráðgjöf og hönnun raf- og stjórnkerfa í matvælaiðnaði og tengdri starfssemi, þ.e. allt frá hönnun stjórnskápa og lagna að forritun og innkeyrslu búnaðar. Við getum til dæmis unnið við jafn ólík verkefni og raf- og stjórnkerfi til blöndunar skyrdrykkja, kerfi til inndælingar mjólkur eða í framleiðsluferli rækjuiðnaðar og fiskimjölsverksmiðja og hannað slíkan raf- og stjórnbúnað fyrir þvottakerfi (CIP) í mjólkuriðnaði.

Sviðið hefur yfir að ráða vandaðri sérfræðiþekkingu í raf- og stjórnkerfum. Þekking okkar á sviði sjálfvirkni er umfangsmikil. Við leggjum okkur fram við að ná yfirsýn og skilningi á virkni vinnsluferla áður en farið er af stað við vinnu að hönnun og forritun. Þessi nálgun hjálpar við að hámarka virkni kerfanna og sér einnig til þess að forritarar kerfana hafa jafnan mestu yfirsýnina þegar kerfin eru komin í rekstur.

Meðal verkkaupa okkar innan matvælaiðnaðarins má m.a nefna: MS Selfossi, MKS Sauðárkróki, MS Búðardal, Rækjuverksmiðjan Dögun, Sauðárkróki, SVN Neskaupsstað og Móar kjúklingasláturhús. Listinn sýnir að reynsla sviðsins innan þessa geira er víðtæk.

Sviðsstjóri
Stefán Kemp Bjarkason
Sími 412 6199, tölvupóstfang: stefan.kemp.@efla.is




Fréttir

24.03.09
Kaldir karlar og konur

Starfsfólki EFLU virðist ekki veita af kælingu af og til, auk þess að stæla líkama og sál, ef marka má þátttakendur í fyrsta sjósundi EFLU fyrir skömmu. Milli 35 og 40 manns tóku dýfur í öldum Fossvogs (við ylströndina í Nauthólsvík)(+) nánar
 

Aukaval


Leturstærðir


Leit

Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi