Hússtjórnarkerfi
Á hússtjórnarsviði EFLU eru hönnuð stjórnkerfi fyrir margvísleg tæki í byggingum af öllum stærðum og gerðum, allt frá smáum hússtjórnarkerfum upp í stór kerfi með mörgum vinnustöðvum og vefaðgangi. Þjónusta okkar felst í að byggja kerfin upp frá grunni og sjá fyrir tæknilegri aðstoð við reksturinn þegar þau eru orðin fullkomlega starfhæf. Markmiðið er að viðskiptavinurinn hafi sem fjölþættust not af kerfunum.
EFLA hefur áratuga reynslu af hússtjórnarkerfum. Fáir ef nokkrir aðrir ráðgjafar standa þar jafnfætis. Við getum boðið fram margvíslegar lausnir, allt eftir því hvað hentar hverjum viðskiptavini. Sérfræðingar okkar hanna, forrita, prófa og gangsetja kerfin og hafa til þess þekkingu á öllum þáttum verksins en það táknar sérstöðu á markaðinum.
Við höfum séð um hússtjórnarkerfi fyrir Perluna, Ráðhús Reykjavíkur, Þjóðarbókhlöðuna, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Flugmálastjórn og Háskólatorg, og sett upp kerfi í margar aðrar bygginga, ásamt kerfum fyrir sundlaugar víða um land.
Sviðsstjóri
Júlíus Karlsson
Sími 412 6144, tölvupóstfang: julius.karlsson@efla.is