Raforkukerfi
EFLA hefur frá upphafi unnið að athugunum á raforkukerfi Íslands, m.a. við að finna hagkvæmustu uppbyggingu kerfisins til framtíðar og til að kanna rekstur þess til skemmri tíma litið. Athuganir sem þessar eru undanfari allra ákvarðana um nýframkvæmdir í kerfinu. Þá hefur fyrirtækið unnið að áreiðanleikagreiningu raforkukerfisins. Þessi verkefni hafa verið unnin fyrir Landsvirkjun og síðar Landsnet. Við höfum enn fremur unnið að athugunum tengdum gjaldskrá Landsvirkjunar og samrekstrarþáttum rafveitna
Raforkukerfissviðið hefur þróað líkan til athugana á aflöryggi í raforkukerfinu sem má nota við langtíma áætlunargerð til að kanna þörf á nýju afli og til að bera saman mismunandi tilhögun í virkjunum, þ.e. fjölda og stærð véla. Þá má nota líkanið til að skipuleggja viðhald virkjana með þeim hætti að rekstraröryggi sé hámarkað.
Kjarnasvið EFLU býr yfir sérhæfðri þekkingu og reynslu á sviði raffræðilegrar hönnunar háspennulína og hefur unnið að slíkum verkefnum innanlands og erlendis. Þá hefur fyrirtækið lagt mikla áherslu á að afla þekkingar á hönnun og útboði jarðstrengja með hárri spennu. Sviðið hefur líka unnið við greiningu umhverfisþátta háspennulína svo sem rafsegulsvið og hávaða.
Við höfum staðið að fjölmörgum tæknilegum athugunum sem tengjast uppbyggingu og rekstri raforkumannvirkja. Til þess höfum við yfir að ráða mjög öflugum og sérhæfðum hugbúnaði. Unnið hefur verið að slíkum athugunum innanlands og utan.
Sviðsstjóri
Jón Bergmundsson
Sími 412 6131, töllvupóstfang: jon.bergmundsson@efla.is