Samgöngumannvirki
EFLA veitir alhliða þjónustu við hönnun samgöngumannvirkja, allt frá undirbúningi að mati á umhverfisáhrifum til hönnunar og verkeftirlits. Mest er um ráðgjöf við hönnun vega, gatna og brúa. Auk þess er veitt alhliða þjónusta við mælingar og kortagerð. Við samhæfða ráðgjöf er lögð áhersla á góða og heildstæða þjónustu, hagkvæmar og umhverfisvænar lausnir
Kröfur til samgöngumannvirkja og þá sérstaklega vegakerfisins hafa aukist gríðarlega. Efla stendur í fararbroddi ráðgjafa á sviði hönnunar vega, gatna og brúa þar sem bestu lausnir nást með samvinnu veghönnuða, brúahönnuða, arkitekta og landslagsarkitekta. Áhersla er lögð á að mannvirki falli vel að umhverfinu og hagkvæmar lausnir séu í samræmi við forsendur. Við ætlum okkur að halda forskotinu með því að hafa framsýni og þor til að takast á við krefjandi verkefni. Undir flokkinn veghönnun falla nokkrir þjónustuflokkar: Gerð frumdraga, for- og verkhönnun vega og vegamóta, mislæg vegamót, gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana og verk- og tímaáætlana. Við gatnahönnun má nefna: Alhliða gatnahönnun í íbúðarhverfum og fyrir stofnbrautir, mislæg gatnamót, göngustíga, lagnahönnun, gerð útboðsgagna og tilboðsgerð, ásamt mati á tilboðum. Við sjáum um hönnun allra brúargerða: Vegbrúa, göngubrúa, bitabrúa, bogabrúa, stagbrúa og hengibrúa, ásamt hönnun steyptra brúa, eftirspenntra brúa og stálbrúa. Auk þess sinnum við ráðgjöf við endurbygging gamalla brúa og eftirlit með byggingu brúa
Á sviði framkvæmda í þéttbýli er margvísleg tæknileg ráðgjöf kjarnasviðsins til reiðu, innan geira hönnunar eða skipulags. EFLA ræður yfir mannafla og tækjum til: Landmælinga, lóða- og hæðablaðagerðar, kortagerðar og landamerkjarannsókna. Við veitum ráðgjöf og þjónustu varðandi landfræðileg upplýsingakerfi og einnig vegna eftirlitsmælinga framkvæmda.
Helsti styrkur sviðsins er mikil fagleg þekking og góð þjónusta sem felst m.a. í skjótum vinnubrögðum þegar við á en við þorum líka að beita óhefðbundnum aðferðum enda byggja þær á faglegu innsæi og eru studdar með gildum rökum. Sviðið sækir jafnframt sérþekkingu til annarra kjarnasviða EFLU s.s. jarðtæknisviðs, umferðarskipulags, og markaðssviða umhverfis og bygginga. Við leggjum einnig áherslu á samstarf við erlenda aðila og sérfræðinga.
Sviðsstjóri
Guðmundur Guðnason
Sími 412 6086, tölvupóstfang: gudmundur.gudnason@efla.is