Fasteignir og viðhald
Löngum hefur sannast að góð umsjón fasteigna skiptir sköpum um endingu þeirra og verðmæti. Sérfæðingar EFLU hafa verið leiðandi afl á sviði viðhalds, endurbóta og endurgerðar á hverskonar mannvirkjum, stórum og smáum, nýlegum eða öldruðum, í rúmlega tvo áratugi. Sú vinna byggist á traustum grunni og þekkingu eldri vinnuaðferða auk nýsköpunar og þróunar í lausnum á nýjum efnum og byggingaraðferðum.
Á fasteigna- og viðhaldssviði EFLU starfa sérfræðingar með sérþekkingu á öllum fagsviðum bygginga, auk sérfræðinga á sviði umhverfis. Þjónustan nær yfir allt sem snýr að umsjón og viðhaldsráðgjöf bygginga og lóða, fasteignaumsjón og rekstur þeirra, uppbyggingu gamalla húsa, breytingum og endurgerð bygginga, umhirðu lóða og grænna svæða, tryggingatengdri þjónustu o.fl. auk rannsókna á byggingarstað, tilrauna og prófana á rannsóknarstofu.
Sérfræðingar EFLU hafa komið að endurgerð og viðhaldi á mörgum merkustu byggingum þjóðarinnar fyrir ríki, sveitarfélög, fasteignafélög, fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga. Við úrlausn verkefna eru vönduð vinnubrögð, hátt gæðastig og hagkvæmni ávallt höfð að leiðarljósi, til að uppfylla óskir viðskiptavina.
Sviðsstjóri
Jón Viðar Guðjónsson
Sími 412 6138, tölvupóstfang: jon.vidar.gudjonsson@efla.is