Algengar spurningar um mótahald:

 

Má keppandi í 2. flokki keppa í 1. flokki á sama móti í grein sem ekki er boðið upp á í 2. flokki?

Nei, keppandi í fullorðinsflokki má einungis ríða í einum styrkleikaflokki á hverju móti.


Má keppandi í yngri flokkum keppa aldursflokki fyrir ofan sig ef ekki er boðið upp á grein í þeirra aldursflokki?

Keppendur í yngri flokkum mega keppa upp fyrir sig um einn flokk ef ekki er boið upp á viðkomandi grein í þeirra aldursflokki. Undanskilið þessari reglu er A-flokkur ungmenna í reglum um gæðingakeppni en þar er tekið fram að börn og unglingar mega taka þátt í þeirri grein.


Má mótshaldari bjóða upp á einn opinn flokk og sameina þannig meistaraflokk og 1. flokk?

Hægt er að bjóða upp á fullorðinsflokk í Sportfeng og sá flokkur er gildur flokkur. Mótshaldari getur sett upp hvaða greinar sem er í fullorðinsflokki.


Má keppandi í yngri flokkum í gæðingakeppni keppa á hvaða hesti sem er, óháð félagi hesteiganda?

Já, eftir reglugerðarbreytingu sem gerð var 2024 er það knapinn í yngri flokkum sem keppir fyrir sitt félag óháð félagsaðild hesteiganda í gæðingakeppni.


Hvaða reglur gilda um stöðulista inn á landsmót í gæðingakeppni?

Mismunandi reglur gilda um stöðulista á Landsmót eftir hvort um sé að ræða yngri flokka eða A- og B-flokk gæðinga. Í reglugerð um Landsmót má lesa um það.

Í A- og B-flokki gæðinga er 6 efstu hestum á stöðulistum, sem ekki náðu inn á LM gegnum úrtöku síns félags, boðið pláss á mótið.

Í yngri flokkum eru það sá fjöldi á stöðulistum sem fyllir fjöldann í aldursflokknum skv. útgefnum fjölda keppenda á LM sem er boðið pláss á LM.


Hvenær þarf keppandi að vera skráður í félag til að mega ríða úrtöku í félaginu?

Keppandi þarf að vera skráður í hestamannafélag til þess að geta skráð sig og tekið þátt á móti. Að því gefnu að viðkomandi hafi ekki keppt á löglegu móti fyrir annað félag á keppnisárinu öðlast hann keppnisrétt um leið og skráning í félagið er gerð og félagsgjöld greidd.

 

Má erlendur ríkisborgari taka þátt í mótum á Íslandi?

Já, sé hann félagsmaður í hestamannafélagi á Íslandi er ekkert því til fyrirstöðu. Þó er það svo að til þess að geta orðið Íslandsmeistari í grein hestaíþrótta þarf að vera íslenskur ríkisborgari. Ef erlendur ríkisborgari sigrar grein á Íslandsmóti er hann ekki titlaður Íslandsmeistari.


Hvaða reglur gilda um hestamannafélag hesteiganda þegar hestur er í hlutafélagseign?

Að minnsta kosti einn eigenda hestsins þarf að vera skráður í það félag sem hesturinn keppir hjá í gæðingakeppni eins og td. úrtöku fyrir Landsmót. Mikilvægt er að hafa í huga að hesteigandi í gæðingakeppni, líkt og keppandi í öðrum löglegum mótum keppir einugnis fyrir eitt félag yfir keppnistímabilið (almanaksárið).
 

Hvenær þarf að tilkynna afskráningar td. í úrslit á mótum?

Afskráning skal fara fram með sannanlegum hætti að minnsta kosti 2 klst. fyrir upphaf fyrstu úrslita greinarinnar. Það þýðir að þar sem boðið er upp á b-úrslit skulu afskráningar í a- og b-úrslit liggja fyrir að minnsta kosti 2 klst. fyrir upphaf b-úrslitanna.

Fyrir forkeppni skal endanlegur ráslisti liggja fyrir klukkustund fyrir upphaf greinarinnar.


Má nota skáreim á enskum reiðmúl?

Já þegar riðið er við hringamél má skáreimin vera á múlnum. Þegar riðið er við stangir má hún ekki vera á.

Tekið skal fram að allir reiðmúlar skulu þannig stilltir að bil á milli neflínu hestsins að múlnum sé að minnsta kosti 1,5 cm. Þ.e passa að herða ekki reiðmúla um of.

 

Hvaða mót gilda til þess að ná lágmörkum á Íslandsmót?

Öll lögleg útimót sem haldin eru og framkvæmt eftir regluverki LH og Feif um mótahald og bjóða upp á þær greinar sem keppt er í á Íslandsmóti gilda til þess að ná lágmörkum. Athuga skal að innanhússmót gilda ekki til árangurs á Íslandsmóti.