Dómaranefnd
Fundagerðir
Reglugerð
2024-2026
Dómaranefnd
Starfsreglur Dómaranefndar LH
- Gildissvið og tilgangur
Starfsreglur þessar eru settar með vísan til laga Landssambands hestamanna („LH“). Tilgangur reglna þessara er að kveða á um starfshætti nefndarinnar og helstu verkefni. Nefndin starfar sjálfstætt á vegum LH sem sér henni fyrir nauðsynlegu rekstrarfé. Hún er ábyrg gagnvart stjórn LH. Í upphafi starfsárs skal leggja fram kostnaðaráætlun vegna starfsins.
2. Skipan nefndarinnar
Stjórn LH skipar nefndina að afloknu landsþingi LH. Starfstími nefndarinnar er til tveggja ára í senn. Nefndina skal skipuð a.m.k. 5 aðilum og tveimur til vara, en auk þess skal starfsfólk skrifstofu LH leggja nefndinni lið. Stjórn LH tilnefnir formann sem sér um boðun funda í samráði við starfsfólk LH. Fyrsti fundur nefndarinnar skal haldinn innan mánaðar frá skipun hennar. Nefndin skal í upphafi síns starfstíma skipta með sér verkefnum. Að öðru leyti kemur nefndin saman eftir þörfum.
Nefndarmenn geta hvenær sem er sagt sig úr nefndinni að undangenginni skriflegri tilkynningu til formanns nefndarinnar eða formanns stjórnar LH.
Stjórn getur endurskipað nefndina telji hún ástæðu til.
3. Hlutverk
Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða dómara.
Nefndin starfar í umboði stjórnar LH og skal í störfum sínum upplýsa eða bera undir stjórn LH mál sem teljast óvenjuleg eða mikilsháttar fyrir starf nefndarinnar, kunna að verða fordæmisgefandi eða hafa áhrif á framtíðarsýn LH.
4. Verkefni
Helstu verkefni nefndarinnar eru:
● Að gera tillögur til stjórnar LH í samráði við dómarafélögin um skipa dómara til starfa á mótum erlendis, Íslandsmótum, Lands- og Fjórðungsmótum.
● Að hafa eftirlit með menntun og endurmenntun dómara, standa fyrir dómaranámskeiðum og útskrifa dómara í samráði við dómarafélögin.
● Dómaranefnd LH skal í samráði við dómarafélögin halda endurmenntunarnámskeið (samhæfingarnámskeið) fyrir lok mars ár hvert. Lög og reglur LH skulu vera til staðar á þessum námskeiðum og uppfærðar á netinu þar sem hægt er að nálgast þær, þannig að allir á þessum námskeiðum hafi aðgang að uppfærðum reglum sem ætlað er að keppa eftir á árinu.
● Einungis þeir dómarar sem mæta á endurmenntun (samhæfingarnámskeið) öðlast viðurkenningu LH til dómstarfa það árið. Dómarafélögin gefa út lista yfir viðurkennda dómara sem birtur er á heimasíðu LH. Mæti dómari ekki til endurmenntunar í tvö ár glatar hann réttindum sínum og þarf að gangast undir próf að nýju í samræmi við reglur félaganna.
● Dómaranefnd LH getur skipað eftirlitsdómara á Íslandsmót, Landsmót, Fórðungsmót og önnur mót ef dómaranefnd telur ástæðu til.
Eftirlitsdómari skal auk þess að vega og meta dómsstörf, fylgjast með því að siðareglur þær sem samþykktar eru af LH séu haldnar í hvívetna af öllum aðilum viðkomandi móts. Eftirlitsdómari skal skila skýrslu til dómaranefndar að loknu hverju móti.
5. Fundargerðir
Fundarritari er ábyrgur fyrir því að fundargerð sé skráð í samræmi við umræður og ákvarðanir fundar. Tilgangur fundargerðar er að skrá niður kjarnann í umfjöllun og ákvörðunum um dagskrárefni, skjalfesta hvaða ákvarðanir eru teknar, hvaða verkefnum er deilt út og hverjir eru ábyrgðaraðilar þeirra verkefna.
Í fundargerð skal jafnframt skrá ef nefndarmaður eða annar víkur af fundi við umræðu eða ákvörðun dagskrárliðar, hvenær hann vék af fundi og hver ástæðan er.
Séu ákvarðanir teknar utan funda, s.s. með tölvupóstsamskiptum eða öðru móti, skal ávallt færa þær ákvarðanir til bókunar í fundargerð næsta bókaða nefndarfund, til staðfestingar.
Fundargerð skal send til nefndarmanna innan tveggja virkra daga frá fundi og nefndarmenn hafa síðan tvo virka daga til að gera athugasemdir. Fundargerð skal samþykkt formlega á næsta fundi nefndarinnar.
Fundargerðir nefndarinnar skulu vera aðgengilegar stjórn LH, eftir að þær teljast samþykktar af nefndinni.
6. Hæfisreglur
Samkvæmt starfsreglum stjórnar LH skulu sömu reglur gilda um hæfi og trúnað fyrir nefndarmenn. Í samræmi við það gilda eftirfarandi hæfisreglur um nefndina.
Nefndarmenn skulu ávallt gæta hæfis síns og forðast hagsmunaárekstra í störfum sínum. Nefndarmönnum ber að tilkynna formanni nefndarinnar um hugsanlegt vanhæfi, gagnvart einstökum málum sem tekin eru upp í nefndinni.
Nefndarmenn skulu ekki taka þátt í meðferð mála þar sem þeir eiga verulegra persónulegra hagsmuna að gæta eða félag sem þeir sitja í stjórn/varastjórn eða eru fyrirsvarsmenn fyrir. Sama gildir um þátttöku í meðferð mála sem tengjast aðilum sem teljast venslaðir þeim með einum eða öðrum hætti.
Nefndarmaður skal víkja af fundi þegar kemur að afgreiðslu mála sem hann brestur hæfi til að taka þátt í. Bóka skal um þessi atriði í fundargerðum.
Nefndarmenn eða framkvæmdastjóri geta krafist þess að nefndarmaður víki sæti telji þeir viðkomandi nefndarmann vanhæfan til meðferðar máls. Verði ágreiningur um hæfi nefndarmanns til meðferðar einstaks máls skal nefndin taka ákvörðun þar um. Sá aðili sem talinn er vanhæfur skal ekki greiða atkvæði um hæfi sitt.
7. Trúnaður
Á nefndarmönnum hvílir þagnarskylda um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skal fara með vegna hagsmuna LH eða annarra hagsmuna, samkvæmt ákvæðum laga, fyrirmælum formanns eða eðli máls. Trúnaðurinn helst áfram eftir að nefndarmenn láta af störfum.
8. Samþykkt og gildistaka
Starfsreglur þessar eru settar með stoð í 6.2 grein laga LH. Þær voru samþykktar á fundi stjórnar LH þann 11. janúar 2025 og tóku gildi þá þegar. Samhliða falla úr gildi fyrri starfsreglur nefndarinnar.
Reglurnar skulu birtar á vefsíðu LH og kynntar þeim sem undir þær falla.


