Starfsreglur Úskurðar-og aganefndar
1. grein.
Stjórn LH skipar úrskurðar- og agaefnd að afloknu landsþingi LH. Starfstími nefndarinnar er til tveggja ára í senn. Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara.
Stjórn LH skipar formann sem skal vera löglærður einstaklingur og varaformann nefndarinnar.
Nefndin starfar samkvæmt reglum LH eftir því sem við á og skulu a. m. k. þrír nefndarmenn taka þátt í ákvörðun nefndarinnar og skal a. m. k. einn þeirra vera formaður eða varaformaður. Um hæfi þeirra sem skipa Úrskurðar- og aganefnd skal farið eftir hæfisreglum stjórnsýslulaga. Þeir sem skipaðir eru í Úrskurðar- og aganefnd skulu ekki eiga sæti í stjórn LH. Sé nefndarmaður í Úrskurðar- og aganefnd jafnframt stjórnarmaður í aðildarfélagi LH skal hann víkja sæti við meðferð máls sem snertir félagsmann þess félags.
2. grein.
Úrskurðar- og aganefnd er heimilt að beita agaviðurlögum vegna brota á lögum, reglugerðum og/eða reglum LH (hér eftir nefnt „reglur LH“) á mótum LH og aðildarfélaga þess (hér eftir sameiginlega nefnt „mótum“) í samræmi við reglur LH hverju sinni.
Beita má agaviðurlögum gagnvart knöpum vegna háttsemi knapa og/eða einstaklinga sem tengjast knapa, þar með talið þjálfara, fjölskyldumeðlima og vina (hér eftir sameiginlega nefndir „tengdir aðilar“). Jafnframt má beita agaviðurlögum gagnvart starfsmönnum á mótum og í tengslum við mót vegna brota á reglum LH.
Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot starfsmanna, keppenda og tengdra aðila á reglum LH á og í tengslum við mót og ákvarðar viðurlög vegna brota.
Úrskurðar- og aganefnd er heimilt að fjalla um kæru vegna brota starfsmanna, knapa og tengdra aðila á reglum LH á mótum, sem og brotum starfsmanna á reglum LH á mótum og í tengslum við þau og veita þessum aðilum áminningu eða önnur viðurlög samkvæmt reglum sem nefndin starfar eftir á hverjum tíma.
Stjórn LH er heimilt að skjóta til Úrskurðar- aganefndar öllum málum sem varðar brot á reglum LH í samræmi við ákvæði greinar 9.2 í lögum LH.
Ákvarðanir Úrskurðar- og aganefndar eru kæranlegar til Dómstóls ÍSÍ.
3. grein.
Úrskurðar- og aganefnd skal fjalla um skýrslur yfirdómnefnda móta sem berast nefndinni og ákvarða viðurlög fyrir brot á reglum LH, þ.á.m. reglum um mótahald á Íslandi, almennum reglum um keppni, reglum um íþróttakeppni og reglum FEIF eftir því sem við á og reglum um ferðalög innanlands og utan.
Heimilt er að kæra til Úrskurðar- og aganefndar ákvarðanir yfirdómnefndar, að því marki sem þær eru ekki háðar endanlegu ákvörðunarvaldi yfirdómnefndar en það eru ákvarðanir um áminningar, útilokun, brottrekstur og keppnisbann.
Kæra til Úrskurðar- og aganefndar skal vera skrifleg. Frestur til að leggja fram kæru skal vera 48 klukkustundir frá mótslokum ef kæra varðar ákvörðun yfirdómnefndar. Í öðrum tilvikum ber að senda kæru til Úrskurðar- og aganefndar innan 48 klukkustunda frá því að kæranda varð ljóst eða hefði mátt vera ljóst um þau atvik sem hann telur að brotið hafi á réttindum sínum eða hagsmunum samkvæmt reglum LH.
Í þeim tilvikum þegar Úrskurðar- og aganefnd ákvarðar viðurlög vegna atvika sem getið er um í mótsskýrslu (og kæranleg eru til Úrskurðar- og aganefndar) og ekki hafa áður verið tekin til ákvörðunar af yfirdómnefnd, skal Úrskurðar- og aganefnd gefa aðila 48 klst. frest til að senda inn skrifleg mótmæli eða athugasemdir um atvik sem getið er um í mótsskýrslu, áður en ákvörðun er tekin.
4. grein.
Um agaviðurlög er vísað til reglugerðar um Úrskurðarnefndir, spjaldareglur og agaviðurlög í reglugerð LH um mótahald á Íslandi.
5. grein.
Sé keppanda vísað af móti með rauðu spjaldi skal Úrskurðar- og aganefnd ákveða tímabil keppnisbanns. Við ákvörðun um tímabil banns skal það ákveðið í dögum, vikum eða mánuðum, en ekki fjölda móta. Vægustu viðurlög skulu ákveðin útilokun frá móti sem brot var framið á. Fyrir alvarlegri brot skulu viðurlög ákveðin í vikum og talin frá og með fyrsta degi móts sem keppanda var vísað af og vara í allt að 24 mánuði frá þeim tíma til lokadags keppnisbanns.
6. grein.
Gerist keppendur, fararstjórar, þjálfarar, liðsstjórar eða aðrir fulltrúar brotlegir gegn reglum um ferðalög innanlands og utan skal fararstjóri kynna Úrskurðar- og aganefnd skýrslu um brotið eigi síðar en 48 tímum eftir heimkomu viðkomandi aðila. Enn fremur er keppendum heimilt með sama hætti að kæra til Úrskurðar- og aganefndar meint brot fararstjórnar. Telji Úrskurðar- og aganefnd brot viðkomandi aðila alvarlegt er heimilt að beita þeim agaviðurlögum sem fram koma í 4. og/eða 5. grein hér að framan eftir því sem við á í hverju tilviki.
7. grein
Úrskurðar- og aganefnd skal gefa hinum brotlega samkvæmt 4. - 5. gr. kost á að senda skriflega skýrslu um atvikið, sé það alvarlegs eðlis og óskir berast um það frá viðkomandi aðila innan 48 tíma frá lokum móts.
8. grein.
Úrskurðar- og aganefnd kemur saman eins oft og þurfa þykir. Úrskurðir nefndarinnar skulu vera skriflegir og skulu kveðnir innan [14] virkra daga eftir að öll gögn og upplýsingar liggja fyrir. Ákvörðun eða úrskurði um keppnisbann skal þó kveða upp innan [5] daga frá mótslokum. Skýrslur skulu sendar í tölvupósti eða á annan sannanlega hátt innan 48 tíma frá mótslokum. Jafnframt skal frumrit af skýrslum yfirdómnefndar póstlagðar og sendar Úrskurðar- og aganefnd.
9. grein
Úrskurð Úrskurðar- og aganefndar skal tilkynna hinum brotlega með tölvupósti eða á sannanlega hátt Nægjanlegt er að nefndin sendi tölvupóst á netfang hins brotlega. Úrskurður skal berast skrifstofu LH innan sólarhrings, sem tilkynnir það aðildarfélögum fyrsta virka dag eftir að hann berst skrifstofunni.
10. grein
Á nefndarmönnum hvílir þagnarskylda um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skal fara með vegna hagsmuna LH eða annarra hagsmuna, samkvæmt ákvæðum laga, fyrirmælum formanns
11. grein
Starfsreglur þessar eru settar með stoð í 6.2 grein laga LH. Þær voru samþykktar á fundi stjórnar LH þann 19. maí 2026 og tóku gildi þá þegar. Samhliða falla úr gildi fyrri starfsreglur nefndarinnar.
Reglurnar skulu birtar á vefsíðu LH og kynntar þeim sem undir þær falla.

