Umhverfisstefna LH
Umhverfisstefna / drög.
Landssamband hestamannafélaga ( LH ) telur nauðsynlegt að standa vörð um náttúru landsins jafnframt því að þjóðin vinni ótrauð að bættum lífskjörum sínum. Markmiðið er að hver kynslóð skili landinu og auðlindum þess í betra horfi til þeirrar næstu.
LH; leitast við að vera til fyrirmyndar í umhverfismálum og fylgir lagalegum kröfum á sviði umhverfismála.
LH; leggur áherslu á að auðlindir landsins séu nýttar á sjálfbæran hátt í þágu landsmanna og komandi kynslóða til efnahagslegs og félagslegs ábata, án þess að ganga á höfuðstól auðlindanna.
LH; vill jafnframt stuðla að sjálfbærum vexti auðlinda svo sem kostur er með skynsamlegri nýtingu þeirra og leggur áherslu á uppgræðslu landsins þar sem tekið er tillit til fjölbreytileika í náttúru þess.
LH; beinir því til hestamanna að vera í fararbroddi á sviði umhverfismála og stuðla að sjálfbærri þróun í starfi sínu.
LH; leggur áherslu á að hestamenn þekkja umhverfisáhrif starfsemi sinnar og leitast við að lágmarka þau áhrif. Til þess að ná stöðugt betri árangri á þessu sviði eru þýðingarmiklir umhverfisþættir vaktaðir og markvisst unnið að umbótum.
LH; beinir því til hestamanna og annarra ferðamanna að sýna náttúru landsins virðingu og leitast við að valda sem minnstu raski í umhverfinu á ferðum sínum um landið.
LH; vill stuðla að góðri umgengni hestaferðamanna og vernd náttúru landsins, m.a. með samstarfi við umhverfis- og náttúruverndaraðila.
LH; leggur áherslu á að uppbygging skála á hálendi Íslands vegna öryggis og þjónustu við ferðamenn skuli vera einföld og umhverfisvæn.
LH; leggur áherslu á að uppbygging samgangna á hálendi Íslands vegna öryggis og þjónustu við ferðamenn skuli falla vel að landinu, vera einföld og umhverfisvæn.
LH; tekur tillit til umhverfismála í allri starfsemi félagsins og stuðlar þannig að betra umhverfi í náttúru Íslands.
LH; leggur áherslu á að starfsfólk og aðrir sem vinna fyrir LH, hafi hæfni og þekkingu til að framfylgja umhverfisstefnu samtakanna.
LH; kynnir stefnu sína í umhverfismálum opinberlega og gerir grein fyrir árangri félagsins í umhverfismálum og stuðlar þannig að opinni og málefnalegri umræðu.