Íslandsmót

Reglur

Íslandsmet

Lágmörk

Íslandsmeistarar

Næstu Íslandsmót

Íslandsmót í hestaíþróttum

Á Íslandsmóti fullorðinna skal keppt í einum styrkleikaflokki.


Keppt skal í greinum þar sem keppendur eru einir inni á vellinum í einu, V1, F1, T1, T2 sem og skeiðgreinum, PP1, P1, P3, P2. Farnir skulu 4 sprettir í 250m og 150m skeiði. Í ungmennaflokki skal keppa í sömu greinum og í fullorðinsflokki auk gæðingalist. Heimilt er að bjóða upp á fleiri greinar, kjósi mótshaldarar svo, sem og sýningagreinar. Í sýningargreinum skal ekki krýna Íslandsmeistara.


Á Íslandsmóti barna og unglinga skal keppt í keppnisgreinum þeim sem skilgreindar eru í hverjum aldursflokki. Heimilt er að fella niður keppnisgrein náist ekki lágmarks þátttaka til verðlauna.


Börn keppi í V2, T3, T4, gæðingalist.

Unglingar keppi í V1, T1, F2, T4, gæðingalist og skeiðgreinum sem skilgreindar eru.


Heimilt er að bjóða upp á fleiri greinar, kjósi mótshaldarar svo, sem og sýningagreinar. Í sýningargreinum skal ekki krýna Íslandsmeistara.


Keppnisárangur skal nást á sama ári og Íslandsmót er haldið. Keppnisárangur er gildur frá löglegum mótum, staðfestur í mótaskýrslu, og skal árangur keppnispars miðast við annan mánudag áður en keppni hefst á Íslandsmóti.


Meistaraflokkur fullorðins – lágmarkseinkunn í öllum greinum sem keppnisnefnd LH ákveður


Ungmennaflokkur – lágmarkseinkunn í öllum greinum sem keppninefnd LH ákveður


Unglingaflokkur – öllum opinn Barnaflokki – öllum opinn

Þeir sem ætla að keppa um samanlagðan sigurvegara þurfa að vera með skráðan árangur í þeim greinum sem gilda til samanlagðra greina og hafa náð lágmarkseinkunn sem Keppnisnefnd LH ákveður í a.m.k einni grein.


Lágmörk á Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 2025


Keppnisnefnd LH hefur samþykkt lágmörk fyrir Íslandsmót 2025 sem haldið verður á Selfossi í lok júní. Lágmörkin haldast að þessu sinni óbreytt frá fyrra ári og við ákvörðunina er horft er til þess að keppendafjöldi sé svipaður og á undanförnum teimur Íslandsmótum.

Tekið skal fram að sérstakt Íslandsmót í Gæðingalist verður haldið hjá Hestamannafélaginu Spretti í Kópavogi 2-4 maí nk og ekki eru sérstök lágmörk í þeirri grein.


Lágmörk á Íslandsmót 2025 eru sem hér segir:


F1 Fimmgangur

Fullorðnir 6.80

Ungmenni 6.10

V1 Fjórgangur

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.50

T1 Tölt

Fullorðnir 7.40

Ungmenni 6.60

T2 Slaktaumatölt

Fullorðnir 7.00

Ungmenni 6.20

PP1 Gæðingaskeið

Fullorðnir 7.10

Ungmenni 5.90

P2 100 m skeið

Fullorðnir 8.00 sek

Ungmenni 9.00 sek

P3 150 m skeið

Opinn flokkur 15.40 sek

Ungmenni 17.00 sek

P1 250 m skeið

Opinn flokkur 24.80 sek

Ungmenni 26.00 sek


Gæðingalist - Íslandsmót í Gæðingalist féll niður 2025 vegna ónægrar þátttöku

Fullorðnir - Opin skráning

Ungmenni - Opin skráning