Afreksstarfið
Eftirtaldir aðilir eru styrktaraðilar afreksstarfsins
Hér má sjá glæsilegt atriði U21 á Allra Sterkustu 2025
Afreksstefna
Afreksstefna Landssambands hestamannafélaga (LH) er skipulag og markmið fyrir afreksstarf hestaíþrótta á Íslandi. Stefnan er fyrir tímabilið 2024-2028 og er unnin af afreksstjóra, landsliðsnefnd og framkvæmdastjóra LH. Afreksstefnan skilgreinir afreksstarf LH sem leggur áherslu á að auka og bæta umgjörð í kringum afrekshópa með það að markmiði að efla hæfni og færni knapa til að gefa þeim tækifæri til að verða afreksfólk í hestaíþróttum á heimsvísu.
Stefnan var samþykkt á Landsþingi 2024.
Hæfileikamótun
Hæfileikamótun LH hófst 2020, þar koma saman til æfinga ungir og hæfileikaríkir knapar víðsvegar af landinu.
Gjaldgengir í hópinn eru unglingar á aldrinum 14-17 ára (unglingaflokkur). Þátttaka í Hæfileikamótun LH er frábært tækifæri fyrir unga knapa til að undirbúa sig með markvissri kennslu til að takast á við verkefni bæði hérlendis og á erlendum vettvangi t.d. Norðurlandamóti.
Markmið Hæfileikamótunar LH er að:
- Fjölga þeim ungu knöpum sem fylgst er með á landsvísu
- Undirbúa unga knapa fyrir hefðbundin landsliðsverkefni
- Að byggja upp til framtíðar knapa í fremstu röð
- Kynna stefnu LH í afreksmálum fyrir félögum og vinna í samvinnu með þeim
- Stuðla að uppbyggilegu afreksstarfi víðsvegar um landið.




U 21 Landslið
Þjálfari:
Hekla Katharína Kristinsdóttir, Hestamannafélagið Geysir
Titilverjendur:
Herdís Björg Jóhannsdóttir, Hestamannafélagið Sprettur
Jón Ársæll Bergmann, Hestamannafélagið Geysir
Aðrir knapar:
Kristján Árni Birgisson, Hestamannafélagið Geysir
Lilja Rún Sigurjónsdóttir, Hestamannafélagið Fákur
Matthías Sigurðsson, Hestamannafélagið Fákur
Védís Huld Sigurðardóttir, Hestamannafélagið Sleipnir
Þórgunnur Þórarinsdóttir, Hestamannafélagið Skagfirðingur
A Landslið

Þjálfari:
Sigurbjörn Bárðarson, Hestamannafélagið Fákur
Titilverjendur:
Elvar Þormarsson, Hestamannafélagið Geysir
Glódís Rún Sigurðardóttir, Hestamannafélagið Sleipnir
Jóhanna Margrét Snorradóttir, Hestamannafélagið Máni
Sara Sigurbjörnsdóttir, Hestamannafélagið Geysir
Aðrir knapar:
Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Hestamannafélagið Hörður
Árni Björn Pálsson, Hestamannafélagið Fákur
Daníel Gunnarsson, Hestamannafélagið Skagfirðingur
Helga Una Björnsdóttir, Hestamannafélagið Þytur
Hinrik Bragason, Hestamannafélagið Fákur
Sigursteinn Sumarliðason, Hestamannafélagið Sleipnir
Þórarinn Ragnarsson, Hestamannafélagið Jökull
