Dr. Matthias Rettig gengur til liðs við landsliðsteymi LH

20. nóvember 2026

Matthias Rettig dýralæknir verður hluti af landsliðsteymi LH fram yfir næstu þrjú Heimsmeistaramót 

Formaður Landsliðs- og afreksnefndar og Dr. Matthias Rettig dýralæknir hafa undirritað samkomulag um áframhaldandi samstarf hans við LH fram yfir HM íslenska hestsins árið 2031. Matthias verður hluti af landsliðsteymi LH á HM í Þýskalandi á komandi sumri og næstu tvö mót til viðbótar.


Matthias er landsliði okkar að góðu kunnur og hefur fylgt hópum okkar á síðastliðin tvö Heimsmeistaramót og einnig séð um skoðanir á keppnishrossum landsliðsins hér á landi fyrir brottför. Hlutverk dýralæknis landsliðsins og mikilvægi þess hefur margsannað sig. 


Matthias er búsettur í Þýskalandi og rekur þar dýraspítala sem heitir Tierklinik Maisheiderland. Hann hefur um árabil starfað sem virtur dýralæknir meðal hestafólks og hefur getið sér góðan orðstýr fyrir færni, fagmennsku og frábært viðmót og er því gríðarlega mikilvægur hlekkur í afreksteymi LH.


Þar sem Matthias starfar á meginlandinu hefur hann komið á heimsmeistaramótin með allan þann búnað sem völ er á, allt frá lækningatækjum og heilbrigðisbúnaði til flugnaspreyja sem nota má við meðhöndlun hesta á mótsstað og er innan þeirra reglna sem gilda um lyfjanotkun.


Landsliðsnefnd LH leggur mikla áherslu á að gæta fyllstu fagmennsku við heilbrigðisskoðanir í aðdraganda á vali í landsliðið fyrir stórmót enda mikið í húfi þegar hestar eru seldir úr landi og á leið á HM.

 

Það er sannkallaður happafengur fyrir LH að hafa Matthias með í landsliðs- og afreksteymi LH. 


Fréttasafn

16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
Lesa meira