Rosemarie og Sigurður sæmd heiðursviðurkenningu ÍSÍ
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
Á Landsþingi Landssambands hestamannafélaga sem fram fór í Hveragerði 30. og 31. október sl. voru tveir hestamenn sæmdir heiðursviðurkenningu frá ÍSÍ. Sigurður Sæmundsson hlaut gullmerki ÍSÍ og Rosemarie Brynhildur Þoleifsdóttir hlaut heiðurskross ÍSÍ. Bæði hafa þau sett sterkan svip á sögu hestaíþrótta á Íslandi, Rosemarie í reiðkennslu og æskulýðsstarfi og Sigurður sem keppnisknapi og landsliðseinvaldur.
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir
Rosemarie Brynhildur Þorleifsdóttir var sæmd heiðurskrossi ÍSÍ, æðstu heiðursviðurkenningu íþróttahreyfingarinnar. Viðurkenningin er veitt einstaklingum fyrir frábært, ómetanlegt og langvarandi starf í þágu íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.
Rosmarie er reiðkennari og einn af frumkvöðlum í íslenskri hestamennsku. Hún lagði mikið af mörkum til þróunar reiðkennslu og æskulýðsstarfs í tengslum við íslenska hestinn, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi. Hún var brautryðjandi í reiðkennslu á Íslandi eftir að hafa lært klassíska reiðmennsku í virtum reiðskóla í Þýskalandi. Rosemarie stofnaði Reiðskólann í Vestra-Geldingaholti árið 1964, það var fyrsti reiðskólinn á Íslandi í einkaeigu og starfrækti hún hann í 53 ár. Reiðskólinn í Vestra-Geldingaholti var heimavistarskóli en börn dvöldu í 7-14 daga og mörg hver komu sumar eftir sumar. Um 5000 börn og unglingar námu reiðkennslu hjá Rosemarie í reiðskólanum í Vestra-Geldingaholti þar sem margir lögðu grunn að sinni hestamennsku. Rosemarie var ákveðinn en hlýr skólastjóri og þótti hjartanlega vænt um nemendur sína. Rosemarie vann mikið að æskulýðsmálum bæði hjá LH og innan FEIF alþjóðasamtaka íslenska hestsins og var liðsstjóri íslenskra unglinga á FEIF Youth Cup í fjölda mörg ár.
Rosemarie hlaut heiðursverðlaun LH árið 2007 og gullmerki ÍSÍ 2009.
Sigurður Sæmundsson
Sigurður Sæmundsson var sæmdur gullmerki ÍSÍ. Það er veitt einstaklingum fyrir framúrskarandi störf, sjálfboðaliðastarf eða framlag til íslenskrar íþróttahreyfingar.
Sigurður á glæsilegan feril að baki bæði sem keppandi og sem landsliðseinvaldur íslenska landsliðsins í hestaíþróttum.
Sigurður var í hópi fremstu afreksknapa landsins á sínum yngri árum. Hann tók fyrst þátt fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramóti sem haldið var í Sviss árið 1972. Hann keppti alls á fimm Evrópu- og Heimsmeistaramótum fyrir hönd Íslands og vann þar til glæsilegra verðlauna: tvenn gullverðlaun og tvenn bronsverðlaun.
Eftir að keppnisferlinum lauk tók hann við keflinu sem landsliðseinvaldur og liðsstjóri íslenska landsliðsins til margra ára, allt til ársins 2007. Í því hlutverki stýrði hann landsliðshópnum á fjölda Heimsmeistaramóta, hélt utan um val á knöpum og hrossum og skipulagði liðið og ferðalögin út á stórmót.
Sigurður hefur hlotið bæði gullmerki LH og Heiðursverðlaun LH sem er æðsta viðurkenning sem LH veitir.
Fréttasafn


















