Ný framboð til varastjórnar LH

30. október 2026

Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd

Kjartan Gunnar Jónsson Hestamannafélaginu Geysi


Ég er hestamaður sem vinnur við járningar og er einn af sex nemendum sem útskrifuðust í járninganámi á Hólum sl. vor.

Ég hef unnið við tamingar bæðir hérlendis og úti í Svíþjóð og hef brennandi áhuga á starfi LH og öllu sem því viðkemur og tilbúinn i öll verkefni. Ég bý austur í Rangárvallasýslu með konu, 2 börn og 2 hunda og við fjölskyldan höfum gaman af að ríða út og rækta góð hross.

Rósa Dögg Þórsdóttir Hestamannafélaginu Blæ

Ég heiti Rósa Dögg og er formaður Hestamannafélagsins Blæs, en því hlutverki hef ég gegnt síðastliðið ár.

Áhugi minn á hestamennsku kviknaði á unglingsárunum, en ég eignaðist ekki mína eigin hesta fyrr en ég var 27 ára. Ég er fyrst og fremst almennur útreiðamaður, en hef einnig kynnst keppnishlið hestamennskunnar í gegnum börnin mín, þar sem ég hef sinnt hlutverki hestasveins, bílstjóra og allsherjar aðstoðarmanns!

Ég hef verið virk í félagsstarfi og setið í ýmsum stjórnum og nefndum og veit því hversu mikilvægt öflugt sjálfboðaliðastarf er.

Ég býð mig fram til varastjórnar LH af áhuga á að kynnast starfi sambandsins betur og leggja mitt af mörkum. Mér finnst mikilvægt að rödd allra landshluta heyrist og að tekið sé tillit til ólíkra aðstæðna hestamannafélaga, stórra sem smárra.

Ég vonast til að geta lagt mitt af mörkum með reynslu minni úr félagsstarfinu og sjónarhorni hins almenna hestamanns

Rósbjörg Jónsdóttir Hestamannafélaginu Sörla

Ég býð mig fram til setu í varastjórn Landssambands hestamannafélaga (LH) fyrir tímabilið 2026–2028. Ég er áhugamanneskja í hestaíþróttinni og Sörlafélagi til margra ára. Fyrir mér er hestamennskan miklu meira en áhugamál: hún sameinar íþróttir, útivist, menningu og samfélag og byggir á einstökum tengslum manns og hests. Hún kennir okkur þolinmæði, ábyrgð, traust og virðingu. Brennandi áhugi minn á íslenska hestinum, félagsstarfinu og framtíð hestamennskunnar er ástæða þess að ég gef kost á mér til starfa fyrir LH.

Reynsla og framlag til LH

Ég hef rúmlega 30 ára reynslu af stjórnun, stefnumótun, uppbyggingu samstarfs þvert á atvinnugreinar og alþjóðlegu viðburðahaldi. Meðal annars hef ég:

• kortlagt sex atvinnugreinar og átti frumkvæði að stofnun Íslenska ferðaklasans,

• stýrt þróun, markaðssetningu og framkvæmd alþjóðlegra viðburða,

• gegnt stjórnarstörfum í fyrirtækjum og félagasamtökum.

Þessa reynslu vil ég nýta til að efla samstarf hestamannafélaganna, styðja við æskulýðsstarf, styrkja stefnumótun LH og skapa aukin verðmæti. Samvinna, traust og skýr markmið, með heildarávinning hestamannahreyfingarinnar að leiðarljósi, eru grunnurinn að framlagi mínu. 


Fréttasafn

29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
26. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ólafur Gunnarsson – Hestamannafélagið Jökull
25. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028  Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur
22. október 2026
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Markmiðið er að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishald, útreiðar, menntun, útflutning og afleidda þjónustu. Gengið hefur verið til samninga við KPMG um að vinna skýrslu um hagspor greinarinnar með aðstoð starfsmanna LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í kjölfarið verði þróað stafrænt mælaborð með lykiltölum sem hagaðilar geta birt eða tengt við á sínum vefmiðlum. Samstarfið mun einnig ná til kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn, með hliðsjón af fyrirmyndum á borð við Horses of Iceland og verður unnið í samtali við stjórnvöld og yfirvöld. „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa. Aðilar samkomulagsins munu eiga virkt samtal við ráðherra, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir um aðkomu að verkefninu og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við stefnumótun, kynningu og verðmætasköpun tengda íslenska hestinum. Næstu skref eru að skilgreina umfang greiningarinnar, undirbúa mælaborð og móta sameiginlega áætlun um kynningarstarf íslenska hestsins í samstarfi við hagaðila og opinbera aðila. Greining á hagrænu umfangi hestamennskunnar og hestaiðnaðinum í heild sinni er mikið gæfuspor fyrir alla sem tengjast greininni og mun nýtast vel til að tryggja greininni þann sess sem hún á skilið, til framtíðar.
19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
Lesa meira