Ragnhildur Gísladóttir býður sig fram til aðalstjórnar LH
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028
Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
Framboð til aðalstjórnar LH
Þótt ég hafi ekki alist upp í hestamennsku hefur áhuginn á hestum alltaf verið til staðar. Langþráður draumur rættist þegar ég fékk Þór í fertugsafmælisgjöf árið 2020 og síðan þá hefur hestamennskan orðið stór hluti af lífi mínu og fjölskyldunnar. Ég stunda útreiðar, sæki námskeið og hef einnig kynnst keppnishestamennskunni í gegnum dóttur mína sem keppir.
Ég hef verið formaður Hestamannafélagsins Ljúfs frá september 2021 og setið í varastjórn LH frá október 2024.
Af hverju býð ég mig fram?
Eftir tveggja ára setu í varastjórn LH langar mig að taka virkari þátt í stefnumótun og ákvarðanatöku sambandsins. Ég tel að ýmis mikilvæg málefni innan hestamennskunnar þurfi meiri athygli og vil leggja mitt af mörkum til að koma þeim á framfæri.
Mín helstu áherslumál eru öflugt barna- og unglingastarf, fræðsla og menntun, velferð hrossa og að almenningshestamennska fái aukið vægi.
Ég vil jafnframt leggja sérstaka áherslu á stuðning við aðildarfélögin, ekki síst þau minni, og fólkið sem sinnir þar ómetanlegu sjálfboðaliðastarfi. LH á að vera öflugur bakhjarl félaganna, veita ráðgjöf og aðstoð þegar eftir því er leitað og gæta jafnræðis milli þeirra.
Ég legg áherslu á gott samstarf og opin samskipti. Ég er ákveðin og óhrædd við að taka ákvarðanir, en tel það jafnframt styrkleika að geta hlustað á önnur sjónarmið og breytt um skoðun þegar góð rök eru fyrir því.
Ég vil leggja mitt af mörkum til LH þar sem öll aðildarfélög hafa rödd og hestamennskan í allri sinni fjölbreytni fær að njóta sín.
Fréttasafn



















