Sigurbjörn Eiríksson býður sig fram til aðalstjórnar LH

25. október 2026

Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028

Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur

Í stuttu máli:

Ég hef setið í stjórn LH síðustu tvö ár, sem fyrsti varamaður með atkvæðisrétt á nánast öllum 42 stjórnarfundum, og gegni formennsku í Landsliðsnefnd. Nú býð ég mig fram í aðalstjórn til að halda því starfi áfram, þétta samstarfið við hestamannafélögin og móta LH inn í framtíðina.


Örlítið um mig:

Ég er fæddur inn í hestamennsku, ég stundaði hestamennsku af krafti frá blautu barnsbeini allt til 18 ára aldurs. Þá tók menntaskólinn við og áhuginn leitaði annað. Alltaf var ég þó með það bak við eyrað að byrja aftur í hestamennsku, það var svo fyrir rúmlega 10 árum að mér var boðið á hestbak og þá var ekki aftur snúið. Ég eignaðist hest og síðan komu fleiri hestar, svo hestakerra, hesthús og landskiki. Áhuginn hafði blundað í mér í fjölmörg ár og er óhætt að segja að ég hafi komið inn með krafti og áhugamálið nú orðið að lífstíl.


Ég hef alltaf haft gaman af öllu sem kemur að hestamennsku, daglegum útreiðum, hestaferðum og hrossarækt. Það sem mér finnst vera sérstaklega heillandi við hestamennskuna eru að þar eru engin landamæri vegna aldurs, stéttar né stöðu, þetta er áhugamál þar sem að margar kynslóðir geta átt góða daga saman. Sem dæmi þá eru mínir daglegir hestafélagar með um 70 ára aldursmun. Fljótlega eftir að ég eignaðist minn fyrsta hest þá fór ég í námið Reiðmaðurinn sem er kennt í Landbúnaðarskólanum á Hvanneyri, ég fann að þarna var mikið meira að sækja í hestamennsku en ég þekkti fyrir, ég fór svo í Reiðmanninn 1, 2, 3 og síðasta vetur fór ég svo í Keppnisnám. Þetta eru frábær námskeið sem bæta bæði reiðmennsku og umhirðu til muna. Strax eftir 1 ár þá fann ég að reiðmennska er mikið meira en bara reiðtúrar fram og til baka. Í dag er ég duglegur að sækja mér námskeið til að bæta við mig hæfni, þekkingu og til að fá aðstoð með þau hross sem ég er að ríða út hverju sinni.


Reynsla af félagsstörfum og sýn fram á við:

Ég sinnti formennsku í Meistaradeild í hestaíþróttum frá haustinu 2020 – 2023, það var mikill skóli og margar brekkurnar, þar fékk ég góða innsýn inn í félagsstörf tengd hestum, kynntist þar frábærum samstarfsaðilum í stjórn, metnaðarfullum knöpum og öflugum liðseigendum. Þar lærði ég að það má alltaf láta gott af sér leiða, ef maður er tilbúinn að leggja sig fram, láta hendur standa fram úr ermum og virkja samstarfs- og styrktaraðila.


Það var svo vorið 2024 að ég bauð mig fram í stjórn Spretts, fékk fína kosningu og sat í stjórn frá 2024 – 2026, þar hitti ég á gríðarlega öfluga aðila sem höfðu sambærilega sýn á hestamannafélagið og sátu með mér í stjórn, við í stjórn settum okkur háleit markmið bæði fjárhagslega og félagslega í að bæta félagið okkar. Því fylgdi mikil vinna og náin samskipti við félagsmenn og ég tel að vel hafi tekist til. Í dag sit ég í Reiðveganefnd Spretts.


Fljótlega þegar að ég kom inn í stjórn Spretts þá fannst mér vanta upp á samtöl og samstarf LH við hestamannafélögin, það varð kveikjan að því að ég bauð mig fram haustið 2024 í varastjórn LH. Mig langaði að komast nær starfsemi LH og kynnast því sem þar færi fram og hafa áhrif.


Ég fékk góða kosningu á Landsþingi hestamanna 2024 inn í varastjórn og endaði inni sem fyrsti varamaður. Það að komast inn í stjórn LH haustið 2024 með því kraftmikla fólki sem þar hlaut kosningu og með svo öflugan formann veitti mér eldmóð inn í starfið. Stjórn LH hefur fundað 42 sinnum á þessum 2 árum og sem fyrsti varamaður þá hef ég nánast alltaf verið með atkvæðisrétt. Haustið 2024 þá settist ég inn í tvær nefndir, Æskulýðsnefnd og Landsliðsnefnd, ég tók sæti varaformanns Landsliðsnefndar strax og svo haustið 2025 þá tók ég að mér formennsku Landsliðsnefndar og leiði nefndina í dag. Fyrir hönd Landsliðsnefndar hef ég farið á tvö stórmót, HM 2025 í Sviss og svo NM 2026 í Svíþjóð. Nú undirbýr nefndin af fullum krafti HM 2027 sem haldið verður í Þýskalandi.


Ég hef brennandi áhuga á að fá að taka enn frekar þátt í að móta LH inn í komandi framtíð, hestamennskan hefur þróast mjög hratt síðustu 10 – 15 árin og ljóst að það má alltaf bæta í og fylgja betur eftir þróun hestamennskunnar. Mig langar að komast inn í aðalstjórn og auka vægi mitt í LH, vinna með góðum hópi sem hefur brennandi áhuga á að gera LH sterkara, þétta raðirnar með hestamannafélögunum og horfa til framtíðar.


Þau málefni sem ég vil leggja sérstaka áherslu á eru:

  • Nýliðun: það er erfitt að byrja í hestamennsku án baklands. LH þarf að stíga fastar inn með hestamannafélögunum og styðja leiðir inn í hestamennskuna fyrir þá sem eiga hvorki hest né fjölskyldu í greininni.
  • Æskulýðsstarf: hestamannafélögin hafa staðið vaktina með prýði en þurfa meiri stuðning frá LH. Ég vil efla hann svo æskulýðsstarfið verði áfram burðarás í félögunum.
  • Innanhússdeildir og mótaraðir: yfir veturinn eru margar deildir og mótaraðir starfandi, hver með sínum hætti. LH á að leiða samræmingu reglna og verklags svo þær geti þróast áfram á traustum grunni.
  • Stefnumótun: halda áfram stefnumótun LH með aðildarfélögunum og fá fleiri að borðinu en þá fáu sem sækja Landsþing. Hvernig hestamennsku viljum við sjá á komandi árum?
  • Hagspor hestamennskunnar á Íslandi: sú vinna er þegar farin af stað og er markmiðið að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þá fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishaldi, útreiðum, menntun, útflutningi og afleiddri þjónustu.
  • Reiðleiðir: hér hefur verið unnið grettistak og því þarf að halda áfram. LH þarf að styðja hestamannafélögin í samstarfi við sveitarfélögin og halda áfram að byggja upp gamlar þjóðleiðir.


Hvað geri ég utan hestamennsku:

Ég á þrjá syni og eina litla afastelpu, ég veit ekkert betra en að eyða mínum tíma með fjölskyldunni og fylgjast með henni vaxa og dafna. Ég og yngsti sonur minn sem er 8 ára stundum hestamennsku saman í Spretti og erum virkir þátttakendur í félaginu.


Ég starfa sem framkvæmdastjóri Innviða hjá Sýn, hef áralanga reynslu úr stjórnendastörfum úr atvinnulífinu, ég hef setið sérhæfð námskeið í stjórnarstörfum í Háskólanum í Reykjavík, hef setið og sit í ýmsum stjórnum tengdum minni vinnu, ég hef mikla reynslu á að sitja í stjórnum tengdum hestamennsku, Meistaradeild í hestaíþróttum, Spretti og LH.


Ég hef gaman af því að vinna með fólki, taka að mér krefjandi verkefni, góð samvinna og árangur hvetja mig áfram og veit ekkert skemmtilegra en takast á við áskoranir og ná settum markmiðum.


Til ykkar:

Kæru félagar, LH hefur náð góðum árangri síðustu ár og á þeim grunni vil ég byggja áfram. Ég hef setið við stjórnarborðið í tvö ár, þekki starfið innan frá og veit hvar tækifærin liggja. Ég býð fram reynslu mína, tíma og eldmóð og óska eftir stuðningi ykkar í aðalstjórn LH.


Saman gerum við LH enn sterkara í þágu hestamanna um land allt.


Kópavogur 25.10.2026 Sigurbjörn Eiríksson



Fréttasafn

22. október 2026
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Markmiðið er að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishald, útreiðar, menntun, útflutning og afleidda þjónustu. Gengið hefur verið til samninga við KPMG um að vinna skýrslu um hagspor greinarinnar með aðstoð starfsmanna LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í kjölfarið verði þróað stafrænt mælaborð með lykiltölum sem hagaðilar geta birt eða tengt við á sínum vefmiðlum. Samstarfið mun einnig ná til kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn, með hliðsjón af fyrirmyndum á borð við Horses of Iceland og verður unnið í samtali við stjórnvöld og yfirvöld. „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa. Aðilar samkomulagsins munu eiga virkt samtal við ráðherra, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir um aðkomu að verkefninu og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við stefnumótun, kynningu og verðmætasköpun tengda íslenska hestinum. Næstu skref eru að skilgreina umfang greiningarinnar, undirbúa mælaborð og móta sameiginlega áætlun um kynningarstarf íslenska hestsins í samstarfi við hagaðila og opinbera aðila. Greining á hagrænu umfangi hestamennskunnar og hestaiðnaðinum í heild sinni er mikið gæfuspor fyrir alla sem tengjast greininni og mun nýtast vel til að tryggja greininni þann sess sem hún á skilið, til framtíðar.
19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
16. september 2026
Vigdís Matthíasdóttir er nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH
Lesa meira