Sýnikennsla landsliðsins í hestaíþróttum
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
Fyrsta sýnikennslan í sýnikennsluröð landsliðsins í hestaíþróttum verður haldin í Samskipahöllinni í Spretti fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 19:00.
Á þessu fyrsta fræðslukvöldi mæta Gústaf Ásgeir Hinriksson, Jóhanna Margrét Snorradóttir og Hanna Rún Ingibergsdóttir með frábær hross og leyfa áhugasömum hestamönnum að skyggnast inn í reynslubanka sinn og fjalla um upphaf vetrarþjáfunar með ólíkar hestgerðir.
Þeim til halds og trausts verða einnig Eik Elvarsdóttir og Gabríel Liljendal Friðfinnsson úr U21-landsliðinu og fá þau dýrmæta punkta í þjálfun sína frá Gústa og Hönnu Rún.
Dagskrá:
Gústaf Ásgeir og Gýmir frá Skúfslæk
Hanna Rún og Orka frá Kjarri
Hlé
Gústaf og Gabríel og Lávarður frá Egilsá
Hanna Rún og Eik og Rauðanótt frá Miðhúsum
Jóhanna Margrét og Orri frá Sámstöðum
Kvöldið er eins og áður segir hið fyrsta í röð skemmtilegra fræðslukvölda landsliðsins en næsta verður á Sauðárkróki 3. desember og á Ingólfshvoli í HorseDay höllinni 7. janúar.
Hvert kvöld um sig verður pakkað af fróðleik og innblæstri fyrir alla hestamenn og við hvetjum alla til þess að mæta, fá innblástur í hestamennskuna og um leið styrkja landsliðið okkar í vegferð sinni að HM 2027 í Rieden í Þýskalandi.
Sýningin hefst klukkan 19:00 í Samskipahöllinni í Kópavogi
Miðaverð er 2900 kr. (frítt inn fyrir 12 ára og yngri)
Sjáumst í Samskipahöllinni
Áfram Ísland!
Fréttasafn


















