Uppfærður listi frambjóðenda
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
Frambjóðandi til aðalstjórnar, Ragnhildur Gísladóttir, dregur framboð sitt til baka, en býður sig jafnframt fram til varastjórnar.
Því er ljóst að sjálfkjörið er í aðalstjórn, því einungis eru 6 í framboði um 6 sæti í aðalstjórn, en kosning fer fram um varastjórn, þar eru 6 í framboði um 5 sæti.
Kjörstjórn áréttar að opið er fyrir framboð til varastjórnar þar til að kosningu kemur.
Uppfærður listi frambjóðenda er eftirfarandi:
Til aðalstjórnar:
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa
Unnur Sigurpálsdóttir, Hestamannafélaginu Skagfirðingi
Sóley Margeirsdóttir, Hestamannafélaginu Geysi
Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti
Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli
Jón Þorberg Steindórsson, Hestamannafélaginu Geysi
Til varastjórnar
Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa
Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki
Kjartan Gunnar Jónsson Hestamannafélaginu Geysi
Rósa Dögg Þórsdóttir Hestamannafélaginu Blæ
Rósbjörg Jónsdóttir, Hestamannafélaginu Sörla
Ragnhildur Gísladóttir, Hestamannafélaginu Ljúfi
Fréttasafn



















