Ólafur Gunnarsson býður sig fram til aðalstjórnar LH

26. október 2026

Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028

Ólafur Gunnarsson – Hestamannafélagið Jökull


Kynning; Endurkjör til stjórnar Landsambands Hestamannafélaga (LH):


Ég heiti Ólafur Gunnarsson og býð mig fram til áframhaldandi setu í stjórn LH 2026 - 2028. Ég er að ljúka mínu öðru tímabili sem gjaldkeri í stjórninni og hef áhuga, vilja og orku til að halda áfram vinnu að málefnum alls hestafólks og framgangi íslenska hestsins. Ég ætla ekki að telja upp í þessari grein öll þau mál og erindi sem hafa komið inn á borð stjórnar LH þetta stjórnartímabil en vill þó nefna þann góða árangur sem náðst hefur með fjárhag og rekstur LH fyrir árið 2025 og stefnir í jákvæða niðurstöðu fyrir 2026. Fjárhagur, áætlanir og fundargerðir liggja fyrir á vef LH en bendi fólki á að nálgast frekari upplýsingar þar (www.lh.is).


Ég hef haft gríðarlega gaman af starfinu á þessu tímabili og margt hefur áunnist. Mjög öflugt keppnis og afreksstarf hefur verið á síðasta kjörtímabili og árangurinn talar sínu máli. Það er sama hvort litið er til Heimsmeistaramótsins 2025, Norðurlandamóts 2026 og Íslandsmóta í öllum aldursflokkum, framfarir eru augljósar á öllum sviðum. 


Við skulum samt ekki gleyma því að LH er fyrir allt hestafólk og það þarf að eiga sér öfluga rödd innan sambandsins. Um það bil 90% af félagsmönnum keppir ekki og þó margir fylgist með og mæti á mót hefur þessi hópur meiri áhuga á hvernig hægt er að styðja hina almennu hestamennsku. Í því fellst uppbygging reiðvega, öryggismál hestafólks, æskulýðsstarf, aðgengi barna að hestamennskunni, að hafa rödd í umræðu hérlendis og erlendis um velferð íslenska hestsins og svo mætti áfram telja.  Ég vil gæta hagsmuna almenns hestafólks og vinna að framgangi almennrar hestamennsku en að því sögðu styðja vel við keppnis- og afreksstarfið.


Það eru mörg önnur mál sem liggja mér á hjarta og lúta meðal annars að: 

  • Framtíð hestamennskunar í stóra samhenginu, greina styrk, veikleika, tækifæri og ógnanir sem nýta má til að móta framtíðarsýn og stefnu. Hér hefur verið unnið mikið starf á síðasta tímabili meðal annars í formlegri stefnumótun. Því starfi vill ég halda áfram.
  • Hagspori hestamennskunar. Fylgja eftir með formanni og stjórn því verkefni sem komið er í farveg sem lítur að þessu málefni.
  • Aðild Íslands að FEIF og hvernig við getum nýtt okkur frekar þá aðild til að auka veg hestamennskunnar, bæði hér heima og erlendis.
  • Klára þau verkefni sem eru á borðinu sem lúta að notkun upplýsingatækni til að halda utan um mótahald og miðla upplýsingum og efni til hestafólks.   
  • Notfæra mér þekkingu mína í rekstri og fjármálum til að LH sér rekið á ábyrgan og sjálfbæran hátt.


Að þessu sögðu er ég mjög bjartsýnn á framtíð hestamennskunnar í öllum sínum fjölbreytileika og vil leggja krafta mína fram til að styrkja þá framtíð. Það eru mörg einstök mál sem huga þarf að, klára sum og ýta öðrum úr vör. Ég ætla að leggja þeim lið, hjálpa til við að sameina hestafólk enn frekar og útbreiða þá gleði og lífsfyllingu sem umgengni við íslenska hestinn veitir. 


Bláskógabyggð 26 október 2026. 

Fréttasafn

25. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028  Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur
22. október 2026
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Markmiðið er að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishald, útreiðar, menntun, útflutning og afleidda þjónustu. Gengið hefur verið til samninga við KPMG um að vinna skýrslu um hagspor greinarinnar með aðstoð starfsmanna LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í kjölfarið verði þróað stafrænt mælaborð með lykiltölum sem hagaðilar geta birt eða tengt við á sínum vefmiðlum. Samstarfið mun einnig ná til kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn, með hliðsjón af fyrirmyndum á borð við Horses of Iceland og verður unnið í samtali við stjórnvöld og yfirvöld. „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa. Aðilar samkomulagsins munu eiga virkt samtal við ráðherra, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir um aðkomu að verkefninu og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við stefnumótun, kynningu og verðmætasköpun tengda íslenska hestinum. Næstu skref eru að skilgreina umfang greiningarinnar, undirbúa mælaborð og móta sameiginlega áætlun um kynningarstarf íslenska hestsins í samstarfi við hagaðila og opinbera aðila. Greining á hagrænu umfangi hestamennskunnar og hestaiðnaðinum í heild sinni er mikið gæfuspor fyrir alla sem tengjast greininni og mun nýtast vel til að tryggja greininni þann sess sem hún á skilið, til framtíðar.
19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
5. október 2026
65. landsþing LH verður haldið í Hveragerði 30. til 31. október 2026. Kjörnefnd LH vekur athygli á að þau sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu tilkynni framboð sitt til nefndarinnar eigi síðar en tveimur vikum fyrir landsþing (sjá grein 4.6 í lögum LH). Framboðsfrestur er til miðnættis 16. október . Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum og taka þeir sæti í aðalstjórn í samræmi við atkvæðahlutfall. Kjörtímabil er til tveggja ára. Kjörgengir í stjórn eru allir félagar í hestamannafélögum sem eru aðilar að LH. Kjörnefnd hvetur þá sem áhuga hafa á að starfa í stjórn LH (stjórn eða varastjórn) að tilkynna framboð fyrir tilsettan tíma til kjörnefndar. Kjörnefnd skipa: Atli Már Ingólfsson, formaður ( atli@landlogmenn.is ) Jón Geir Sigurbjörnsson (jongeir@gmail.com) Hafrún Hlín Magnúsdóttir (hafrunhlin@gmail.com) Samkvæmt lögum LH, (grein 4.6 Kosning stjórnar), birtir kjörnefnd hér lista yfir þá einstaklinga sem sitja í stjórn og gefa kost á sér áfram. Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir Til aðalstjórnar: Jón Þorberg Steindórsson og til vara í varastjórn Ólafur Gunnarsson Ragnhildur Gísladóttir og til vara í varastjórn Sigurbjörn Eiríksson Sóley Margeirsdóttir og til vara í varastjórn Unnur Sigurpálsdóttir og til vara í varastjórn Þórhildur Katrín Stefánsdóttir Til varastjórnar Hilmar Guðmannsson Reynir Atli Jónsson
2. október 2026
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum. Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta. Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans. Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar. Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð. Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
17. september 2026
Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013
Lesa meira