Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2026
Á Uppskeruhátíð LH sem haldin var í Gamla bíó, voru krýndir bestu knapar ársins 2026 og keppnishestabú ársins valið.
Knapi ársins er Jakob Svavar Sigurðsson
Jakob Svavar átti stórkostlegt ár á keppnisbrautinni. Jakob Svavar sigraði B flokk á Landsmóti hestamanna á Kór frá Skálakoti með einkunnina 9,19. Þeir tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni, sýndu mikið öryggi og voru á toppnum allt til enda. Jakob var jafnframt í 2. sæti í tölti á Landsmóti hestamanna á Skarpi frá Kýrholti og í 5. sæti í A flokki á Goða frá Bjarnarhöfn.
Jakob Svavar er líka þrefaldur Íslandsmeistari. Hann sigraði tölt T1 á Skarpi frá Kýrholti með 9,61 í einkunn en þeir sigruðu einnig fjórgang með 8,20 í einkunn. Jakob sigraði slaktaumatölt T2 á Hrefnu frá Fákshólum með 8,88 í einkunn.
Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2026.
Íþróttaknapi ársins er Ásmundur Ernir Snorrason
Ásmundur varð Landsmótssigurvegari í tölti á Hlökk frá Strandarhöfði þegar þau fóru í hæstu tölur sem gefnar hafa verið í tölti, 9,27 í forkeppni og 9,78 í úrslitum. Ásmundur er jafnframt samanlaðgður Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Hlökk. Ásmundur og Hlökk eru efst á heimslista FEIF í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum.
Ásmundur var í þriðja sæti í fimmgangi á Íslandsmóti á Aski frá Holtsmúla auk þess sem þeir sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti.
Ásmundur Ernir Snorrason er íþróttaknapi ársins 2026.
Gæðingaknapi ársins er Hans Þór Hilmarsson
Hans Þór sigraði A flokk á Landsmóti hestamanna á eftirminnilegan hátt á Sindra frá Hjarðartúni með einkunina 9,13. Sýning þeirra einkenndist af fagmennsku og krafti og voru skeiðsprettir sýningarinnar sérstaklega eftirminnilegir.
Hans Þór Hilmarsson er gæðingaknapi ársins 2026.
Skeiðknapi ársins er Eyrún Ýr Pálsdóttir
Eyrún vann 100 metra skeið á Landsmóti á hryssunni Friðsemd frá Kópavogi. Eyrún og Friðsemd unnu jafnframt 100 metra skeið á Íslandsmóti auk þess að hafa sigrað sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Eyrún og Friðsemd eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði, 7,30 sek.
Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins 2026.
Efnilegasti knapi ársins er Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
Guðmar átti einstakt keppnisár, hann varð tvöfaldur Landsmótssigurvegari þegar hann sigraði B flokk ungmenna á Gretti frá Hólum og A flokk ungmenna á Kalsa frá Þúfum.
Hann er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í fjórgangi og tölti ungmenna á Gretti og í fimmgangi ungmenna á Kalsa frá Þúfum.
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er efnilegasti knapi ársins 2026.
Keppnishestabú ársins er Garðshorn á Þelamörk
Garðshorn á Þelamörk hefur um árabil ræktað hross í fremstu röð. Frá búinu kemur einn afkastameski skeiðhestur samtímans, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Kastor sigraði 250m skeið á Landsmóti hestamanna auk þess sem hann var í 4. sæti í A flokki gæðinga á sama móti. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er fasmikill og mjúkur klárhestur sem endaði annar í B flokki á Landsmóti hestamanna.
Garðshorn á Þelamörk er keppnishestabú ársins 2026.
Að valinu stendur valnefnd LH sem er skipuðuð fjölbreyttum hópi og þar eiga fulltrúa stjórn LH, GDLH, HÍDÍ, FT og fjölmiðlar. Við val á knöpum ársins skal tekið tillit til árangurs á árinu: ástundunar, prúðmennsku og íþróttamannlegrar framkomu innan vallar sem utan. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri á sviði reiðmennsku og frammistaða hans sé álitin hestaíþróttinni til framdráttar, hvort sem um er að ræða eitt afgerandi afrek, eða frábæran árangur í mörgum greinum á mörgum mótum. Við val þeirra sem viðurkenningar hljóta skal gaumgæfa árangur jafnt hér heima sem erlendis (WR mót og stórmót).
Fréttasafn



























