Átta hlutu gullmerki LH

5. nóvember 2026

Gullmerki veitt á Landsþingi

Á Landsþingi LH sem fram fór á Hótel Örk í Hveragerði dagana 30. og 31. október var 8 einstaklingum veitt gullmerki LH. Það voru þau Anna Björg Níelsdóttir, Bjarni Jónasson, Bjarni Þorkelsson, Elísabet Sveinsdóttir, Halldór Guðmundsson, Helga Fjóla Guðnadóttir, Helga Ragna Pálsdóttir og Margeir Þorgeirsson.


Öll hafa þau unnið ötullega að framgangi hestamennsku og lagt mikið af mörkum hvert á sinn hátt. Eru þeim færðar kærar þakkir fyrir sitt óeigingjarna starf í þágu hestamennskunnar og innilegar hamingjuóskir með heiðursviðurkenninguna.

Hér að neðan má lesa nánar um gullmerkjahafa LH 2026.


Anna Björg Níelsdóttir, hestamannafélaginu Sleipni

Anna Björg Níelsdóttir hefur setið í stjórn hestamannafélagins Sleipnis síðan árið 2028 og er núverandi gjaldkeri félagsins. Anna Björg brennur fyrir æskulýðs- og mótamál sem glöggt má sjá í hennar störfum. Hún hefur komið að mótahaldi hjá hestamannafélaginu Sleipni síðastliðin ár og setið í framkvæmdanefnd Íslandsmóta sem félagið hélt 2025 og 2026. Anna Björg kom að stofnun Meistaradeildar æskunnar árið 2016, tók þátt í stofnun Meistaradeildar ungmenna árið 2020 og kom að stofnun mótaraðarinnar Æska Suðurlands. Þessar mótaraðir hafa gefið ungum knöpum á svæðinu dýrmæta reynslu og skapað fyrir þau ómetanleg tækifæri sem ekki voru áður. Anna Björg starfaði einnig að æskulýðsmálum hjá hestamannafélaginu Ljúfi uppúr 2000 og kom á fót námskeiði fyrir börn á svæðinu í samstarfi við Eldhesta. Anna Björg hefur lagt mikið til eflingar æskulýðsstarfs og mótahalds á félagssvæði sínu og víðar.

Anna Björg Níelsdóttir er hér með sæmd gullmerki LH.


Bjarni Jónasson, hestamannafélaginu Skagfirðingi

Bjarni Jónasson hóf félagsstörf sín hjá Hestamannafélaginu Kinnskæ árið 1980. Eftir að hann fluttist búferlum í Skagafjörðinn hefur hann lagt gríðarlega mikið af mörkum til félagsstarfs og mótahalds. Hann tók þátt í félagsstarfi Stíganda og Léttfeta áður en félögin sameinuðust í Hestamannafélaginu Skagfirðingi þar sem Bjarni sat um tíma sem varaformaður. Bjarni kemur að flestum mótum sem haldin eru á félagssvæði Skagfirðings og kom að stofnun skeiðnefndar Skagfirðings. Hann sat auk þess í framkvæmdanefnd Landsmóts á Hólum 2026. Bjarni hefur lagt sérstaka áherslu á að efla áhugamenn í hestamennsku með reiðkennslu, aðstoð og hvatingu. Hann kom að stofnun Áhugamannadeildar Norðurlands auk þess sem hann var ötull talsmaður þess að B flokkur áhugamanna fengi sess á Landsmóti hestamanna. Með dugnaði, ósérhlífni og brennandi áhuga á hestamennsku hefur Bjarni unnið ómetanlegt starf í þágu hestafólks.

Bjarni Jónasson er hér með sæmdur gullmerki LH.



Bjarni Þorkelsson, hestamannafélaginu Jökli

Bjarni Þorkelsson er alinn upp á Laugarvatni í Laugardal. Bjarni var hrossabóndi á Þóroddsstöðum í Grímsnesi um áratugaskeið en þaðan eiga mörg af hæst dæmdu kynbótahrossum og gæðingum landsins ættir sínar að rekja. Bjarni hefur um áratuga skeið verið virkur í félagsstarfi hestamanna, sótt fundi, tekið þátt í umræðum og ritað fjölda greina um hestamennsku og hrossarækt. Þá skrifaði hann og gaf út Æviskeið, ævisögu föður síns, Þorkels Bjarnasonar hrossaræktarráðunautar og lagði þar með drjúgan skerf til varðveislu sögu hestamennsku og hrossaræktar.Bjarni var dyggur félagsmaður í Hestamannafélaginu Trausta alla starfstíð þess, um 60 ár. Hann gegndi þar formennsku um hríð, en þátttaka í félagsstarfinu og keppninni gekk oftast fyrir. Bjarni átti jafnframt sæti í Fagráði í hrossarækt um hríð. Bjarni Þorkelsson er haldinn alvarlegri og ólæknandi skeiðfíkn. Bjarni er þriðji ættliður slíkra manna, en sonur hans og sonarsonur tryggja að ættliðirnir eru nú orðnir fimm, sem glíma við skeiðfíknina. Bjarni sótti aðalfundi, landsþing og ráðstefnur hestamanna og hrossaræktenda um árabil, og lét jafnan til sín taka á þeim vettvangi.

Bjarni Þorkelsson er hér með sæmdur gullmerki LH


Elísabet Sveinsdóttir, hestamannafélaginu Sleipni

Elísabet Sveinsdóttir hefur verið gríðarlega öflug í sjálfboðaliðastarfi fyrir hestamannafélagið Sleipni frá árinu 2014. Þar áður hafði hún einnig sinnt sjálfboðaliðastarfi í hestamannafélögunum Andvara og Freyfaxa.

Elísabet hefur verið stoð og stytta í mótahaldi félagsins um nokkurra ára skeið en auk þess er hún í sæti þular á flestum mótum félagsins. Hún hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2024 og verið virkur þátttakandi í eflingu æskulýðsstarfs sem og eflingu fræðslustarfs innan félagsins. Elísabet stofnaði Töltskvísur Sleipnis árið 2018 þar sem um 40 konur, víðsvegar af suðurlandi hafa tekið þátt. Árið 2020 byrjaði Elísabet með námskeiðið; Treystu mér, sem er úrræði fyrir börn sem glíma við einhvers konar erfiðleika í lífinu. Elísabet fór af stað með félagshesthús Sleipnis ásamt því að endurvekja pollanámskeið hjá Sleipni, sem vakti mikla lukku meðal yngstu knapanna okkar. Árið 2026 fékk Beta styrk úr hvatasjóði, til að setja á laggirnar verkefni Allir á bak sem er ætlað börnum með hvers konar sér- og stuðningsþarfir. Elísabet hefur unnið ómetanlegt starf fyrir börn og fólk sem þurfa á stuðnigi að halda auk þess að vera mikilvægur hlekkur í mótahaldi félagsins.

Elísabet Sveinsdóttir er hér með sæmd gullmerki LH.


Halldór Guðmundsson, hestamannafélaginu Ljúfi

Halldór Guðmundsson hefur alla tíð haft mikinn áhuga á hestum og öllu er viðkemur hestamennsku. Halldór hefur verið gríðarlega öflugur í sjálfboðaliðastörfum og setið í stjórnum bæði fyrir hestamannafélagið Ljúf sem og önnur félög tengd hestamennsku. Halldór sat í stjórn Hestamannafélagsins Ljúfs, fyrst sem stjórnarmaður og ritari og síðan var hann formaður félagsins í 14 ár. Halldór var í stjórn Rangárbakka ehf. og í framkvæmdanefnd við uppbyggingu á svæðinu á Rangaárbökkum, m.a. var hann gjaldkeri félagsins í 4 ár. Halldór sat í stjórn Landsmóts 2000 ehf. sem ritari og var jafnframt í framkvæmdanefnd fyrir fjórðungsmót og landsmót sem fram fóru á Hellu og í Reykjavík. Halldór hefur setið mörg landsþing LH fyrir Ljúf í gegnum tíðina.

Halldór Guðmundsson er hér með sæmdur gullmerki LH. 


 Helga Fjóla Guðnadóttir, hestamannafélaginu Geysi

Helga Fjóla Guðnadóttir í Skarði í Landssveit hefur um áratugaskeið unnið ötullega að félagsstörfum fyrir Hestamannafélagið Geysi. Helga Fjóla lagði grunninn að öflugu æskulýðsstarfi félagsins og sat um árabil í æskulýðsnefnd. Hún sinnti jafnframt starfi deildarstjóra Hvolhreppsdeildar. Helga Fjóla tók sæti í stjórn Hestamannafélagsins Geysis árið 1996 og gengdi formennsku félagins á árunum 1997 – 2002.

Helga Fjóla lét einnig til sín taka við uppbyggingu Rangárbakka ehf. og varð fyrsti formaður félagsins. Fljótlega tók hún jafnframt við starfi framkvæmdarstjóra og lagði þar með sitt að mörkum við uppbyggingu félagsins og svæðisins.

Helga Fjóla Guðnadóttir er hér með sæmd gullmerki LH.


Helga Ragna Pálsdóttir, hestamannafélaginu Ljúfi

Helga Ragna Pálsdóttir hefur búið í Kjarri í Ölfusi síðan 1981 og stundar þar garðplöntuframleiðslu og hrossarækt ásamt fjölskyldu sinni. Helga hefur frá því hún man eftir sér verið viðriðin hestamennskuna og í uppvextinum kynntist hún félagsstarfi hestamannafélagsins Ljúfs. Ung að árum sinnti Helga æskulýðsmálum hjá félaginu og tók einnig þátt í sameiginlegu æskulýðsstarfi hestamannafélaginu á Suðurlandi sem var öflugt á þeim tíma. Síðar tók Helga að sér setu í stjórn Ljúfs og sinnti ritarastarfi og ýmsu fleiru í meira en áratug.   

Reiðveganefnd Ljúfs var sett á laggirnar árið 2003 og leiddi Helga starf nefndarinnar í 6 ár. Á þeim tíma var ástand reiðvegamála á svæðinu bágborið en með samstilltu átaki fjölmargra aðila undir forystu nefndarinnar tókst að koma reiðleiðum inn á aðalskipulag sveitafélaganna með fullu samþykki landeigenda. Í framhaldinu var farið í gerð reiðvegakerfis sem þótti vel til takast svo eftir var tekið á landsvísu. 

Árið 2012 tók Helga að sér að koma upp trjágróðri til skjóls og fegrunar á Rangárbökkum, svæði hestamannafélaganna á Suðurlandi. Upp frá því tók hún sæti í stjórn Rangárbakka og vann meðal annars að undirbúningi Landsmóts 2022.   

Helga Ragna Pálsdóttir er hér með sæmd gullmerki LH.


Margeir Þorgeirsson, hestamannafélaginu Geysi

Margeir hefur um áratugaskeið verið gríðarlega öflugur í skipulögðu félagsstarfi hestamanna á Íslandi. Margeir tók sæti í stjórn Hestamannafélagsins Mána á Suðurnesjum árið 1992 og tók árið 1999 við sem formaður félagsins og sinnti því til ársins 2006. Þar leiddi hann mikla uppbyggingu og tryggði framtíðaraðstöðu félagsins með elju og útsjónarsemi. Margeir kom að því að halda tvö Íslandsmót félagssvæði Mána. Árið 2000 tók Margeir sæti í kjörnefnd Landssambands hestamannafélaga og hefur verið formaður nefndarinnar síðustu ár. Þá sat Margeir í reiðveganefnd Kjalarnesþings hins forna og lagði sitt að mörkum við að byggja upp reiðvegakerfi landsins. Í dag er hann öflugur sjálfboðaliði hestamannafélagsins Geysis og hefur verið óþreytandi að vinna þau sjálfboðaliðastörf sem þarf til að halda skipulögðu félagsstarfi gangandi.

Margeir Þorgeirsson er hér með sæmdur gullmerki LH

Fréttasafn

3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
2. nóvember 2026
Að loknu hverju landsþingi skipar stjórn Landssambands hestamannafélaga í nefndir sambandsins til tveggja ára. Nefndarstörf eru undirstaðan í öllu starfi LH og mikilvægt að fá öfluga sjálfboðaliða sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum. Nefndastarf á vegum LH er skemmtilegt og fræðandi, auk þess sem störf í nefndum eru gefandi og til þess fallin að efla tengslanet nefndafólks. Ef þú ert tilbúin/n til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um á sértöku umsóknareyðublaði . Frestur til að gefa kost á sér í nefndastörf LH er 20. nóvember. Nefndirnar sem um ræðir eru: Keppnisnefnd Keppnisnefnd fjallar um mál sem stjórn LH vísar til hennar en hefur að öðru leyti frumkvæðisrétt að málefnum sem undir hana heyra. Hlutverk nefndarinnar er að bæta reglur er viðkoma keppni í hestamennsku, þannig að þær séu einfaldar, skiljanlegar og skýrar. Laganefnd Hlutverk nefndarinnar er að að bæta regluverk LH, þannig að það sé einfalt, skiljanlegt og skýrt og vera stjórn til ráðgjafar er varðar túlkun á lögum og reglum LH. Nefndin sér einnig um að breytingar á lögum og reglum sem samþykktar eru á FEIF-þingi og landsþingi LH séu rétt færð inn í lög og reglur LH og fara yfir tillögur til landsþings. Landsliðs- og afreksnefnd Hlutverk landsliðs- og afreksnefndar er að móta umgjörð um afreksmál LH og halda utan um landsliðshópa og hæfileikamótun LH. Nefndin er einnig fjáröflunarnefnd fyrir afreksstarf LH. Nefndin skipuleggur landsliðsferðir og fylgir eftir landsliðum Íslands í hestaíþróttum á HM og NM. Mannvirkjanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðgefandi varðandi gerð og notkun mannvirkja á hestaíþróttasvæðum hestamannafélaganna. Einnig ber nefndinni að vera stjórn innan handar varðandi lágmarkskröfur sem gerðar eru til mótshaldara Íslandsmóta og Landsmóta hvað varðar aðstæður á mótssvæði. Menntanefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera sérfræðilegur ráðunautur sambandsstjórnar LH í öllum málefnum er varða fræðslu og menntun. Nefndin heldur utan um endurmenntunarnámskeið fyrir reiðkennara og staðfestir virka reiðkennara til FEIF. Annað hvert ár stendur nefndin fyrir endurmenntunarráðstefnu. Tölvunefnd Hlutverk nefndarinnar er að tryggja aðgengi aðildarfélaga LH að framúrskarandi forriti sem reiknar út niðurstöður móta og birtir niðurstöður á aðgengilegan hátt. Nefndin stuðlar að þróun mótaforrits í samræmi við kröfur samtímans. Úrskurðar- og aganefnd Úrskurðar- og aganefnd LH skal skipuð þremur aðalmönnum og tveimur til vara, formaður skal vera löglærður. Úrskurðar- og aganefnd úrskurðar um brot á lögum, reglugerðum og reglum LH og ákvarðar viðurlög, í samræmi við reglur Úrskurðar- og aganefndar. Æskulýðsnefnd Hlutverk Æskulýðsnefndar er að efla fræðslu um æskulýðsmál, gæta hagsmuna og jafnræðis æskunnar í íþróttinni, auka fræðslu æskulýðsfulltrúa um allt land og styðja við þá í starfi. Nefndin sér einnig um val þátttakenda á FEIF Youth Cup og Youth Camp. Útbreiðslu- og nýliðunarnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vinna að útbreiðslu og kynningu á hestaíþróttum og stuðla að jákvæðri ímynd hestaíþrótta. Nefndinni er einnig ætlað að vinna að aukinni útbreiðslu og umfjöllun um hestaíþróttir. Öryggisnefnd Hlutverk nefndarinnar er að vera vakandi yfir því sem varðar öryggi hestafólks hvort sem er í búnaði hestafólks eða umhverfi hestaíþrótta. Nefndin stuðlar að öryggi á reiðvegum og annars staðar þar sem hestamennska er stunduð og sér um að fræða hinn almenna hestamann um hvernig hægt er að bæta öryggi í nærumhverfi. Ef þú ert tilbúin til að starfa í nefnd hjá LH þá sækir þú um með því að smella hér .
31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
Lesa meira