Þórhildur Katrín Stefánsdóttir býður sig fram til aðalstjórnar LH

31. október 2026

Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028

Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur


Þórhildur Katrín Stefánsdóttir

Ég heiti Þórhildur Katrín Stefánsdóttir og býð mig fram til áframhaldandi setu í aðalstjórn Landssambands hestamannafélaga fyrir tímabilið 2026–2028.

Ég hef setið í stjórn LH frá árinu 2024 og gegnt stöðu varaformanns. Þessi tími hefur verið bæði lærdómsríkur og skemmtilegur og gefið mér góða innsýn í það fjölbreytta starf sem unnið er innan sambandsins.

Á þessum tíma hef ég meðal annars setið í landsliðsnefnd, öryggisnefnd, æskulýðsnefnd og laganefnd LH, auk þess að koma að skipulagningu viðburða á borð við Allra sterkustu og Uppskeruhátíðina. Verkefnin hafa verið fjölbreytt og mér hefur þótt sérstaklega ánægjulegt að fá að vinna með því öfluga fólki sem lætur sig hestamennskuna varða.

Ég er búsett á Djúpavogi, þar sem ég er formaður hestamannafélagsins Glampa, en er alin upp í Mosfellsbænum og á rætur mínar í Herði. Ég er lögfræðingur, sit í sveitarstjórn Múlaþings og hef í gegnum tíðina tekið virkan þátt í ýmiss konar félags- og nefndastarfi.

Ég hef mikinn áhuga á félagsstörfum og brenn fyrir því að efla hestamennskuna, styðja við starf hestamannafélaganna og skapa góðar aðstæður fyrir þá fjölmörgu sem koma að íþróttinni, hvort sem er í keppni, frístundum eða sjálfboðastarfi.

Ég er þakklát fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt undanfarin tvö ár og væri ánægð með að fá tækifæri til að halda áfram að leggja mitt af mörkum í stjórn LH.


Fréttasafn

31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
26. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ólafur Gunnarsson – Hestamannafélagið Jökull
25. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028  Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur
Lesa meira