Reynir Atli Jónsson býður sig fram til varastjórnar LH

28. október 2026

Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028

Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi


Smá um mig

Ég er fæddur árið 1978 á Seyðisfirði og bý á Þórshöfn. Ég er félagi í hestamannafélögunum Snæfaxa og Freyfaxa og hef stundað hestamennsku frá 12 ára aldri.


Reynsla og menntun

Ég er reiðkennari C frá Hólum og hef unnið við reiðkennslu og tamningar, samhliða öðrum störfum, frá árinu 2000.


Starfið innan LH

Ég hef setið í varastjórn LH síðustu tvö ár, verið í menntanefnd og meðal annars komið að menntaráðstefnu FEIF. Ég sit líka í mannvirkjanefnd LH.


Það sem mér finnst skipta máli

Ég vil að LH sé í góðum tengslum við hestamannafélögin um allt land, ekki síst þau minni á landsbyggðinni. Menntamál, æskulýðsstarf og nýliðun eru mér líka sérstaklega hugleikin. Það þarf að vera gott fyrir fólk á öllum aldri að byrja í hestamennsku og finna sér þar stað.


Af hverju býð ég mig fram aftur?

Ég er að flestu leyti ánægður með þessi tvö ár í varastjórn og býð mig þess vegna fram aftur. Ég hef trú á að núverandi stjórn sé á réttri leið. Með meiri reynslu og betri þekkingu á málefnum LH tel ég að hún geti haldið áfram að gera góða hluti fyrir hestamennskuna um allt land. 

Fréttasafn

27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
26. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ólafur Gunnarsson – Hestamannafélagið Jökull
25. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028  Sigurbjörn Eiríksson – Hestamannafélagið Sprettur
22. október 2026
Landssamband hestamannafélaga, Bændasamtök Íslands, Deild hrossabænda innan BÍ, Háskóli Íslands á Hólum og Samtök ferðaþjónustunnar hafa gert með sér samkomulag um greiningu á hagspori hestamennskunnar á Íslandi. Linda Björk Gunnlaugsdóttir formaður LH, Trausti Hjálmarson formaður BÍ, Ólafur Þórisson formaður Deildar hrossabænda, Hólmfríður Sveinsdóttir forseti Háskólans á Hólum og Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri SAF undirrituðu samkomulagið. Markmiðið er að draga fram með skýrum hætti efnahagslegt og samfélagslegt mikilvægi íslenska hestsins og þeirri fjölbreyttu starfsemi sem honum tengist, svo sem hrossarækt, ferðaþjónustu, viðburða- og keppnishald, útreiðar, menntun, útflutning og afleidda þjónustu. Gengið hefur verið til samninga við KPMG um að vinna skýrslu um hagspor greinarinnar með aðstoð starfsmanna LH, BÍ og Háskólans á Hólum. Í kjölfarið verði þróað stafrænt mælaborð með lykiltölum sem hagaðilar geta birt eða tengt við á sínum vefmiðlum. Samstarfið mun einnig ná til kynningarstarfs fyrir íslenska hestinn, með hliðsjón af fyrirmyndum á borð við Horses of Iceland og verður unnið í samtali við stjórnvöld og yfirvöld. „Íslenski hesturinn er einstakur hluti af menningu, atvinnulífi og ímynd Íslands. Með sameiginlegu átaki viljum við sýna með skýrum gögnum hvaða verðmæti greinin skapar þjóðarbúinu og nýta þá þekkingu til frekari uppbyggingar og kynningar,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu þeirra sem að samkomulaginu standa. Aðilar samkomulagsins munu eiga virkt samtal við ráðherra, stjórnvöld og viðeigandi stofnanir um aðkomu að verkefninu og hvernig niðurstöðurnar geti nýst við stefnumótun, kynningu og verðmætasköpun tengda íslenska hestinum. Næstu skref eru að skilgreina umfang greiningarinnar, undirbúa mælaborð og móta sameiginlega áætlun um kynningarstarf íslenska hestsins í samstarfi við hagaðila og opinbera aðila. Greining á hagrænu umfangi hestamennskunnar og hestaiðnaðinum í heild sinni er mikið gæfuspor fyrir alla sem tengjast greininni og mun nýtast vel til að tryggja greininni þann sess sem hún á skilið, til framtíðar.
19. október 2026
Kjörne fnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl. Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára. Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028 Til formanns Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti Til aðalstjórnar: Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi Til varastjórnar Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið ( atli@landlogmenn.is ).
15. október 2026
Hvað er Landsmót og fyrir hverja er það?
13. október 2026
Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum
8. október 2026
Hörð samkeppni um HM sæti
7. október 2026
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027
Lesa meira