Framboð til stjórnar LH 2026-2028
Kjörnefnd birtir lista yfir þá sem gefa kost á sér til stjórnarsetu LH næstu tvö árin. Framboðsfrestur var til föstudags 16. október sl.
Stjórn LH fer með æðsta vald í málefnum sambandsins milli þinga. Stjórnin skal skipuð sjö mönnum, formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Varastjórn skal skipuð fimm mönnum. Kjörtímabil er til tveggja ára.
Framboð til stjórnar Landssambands hestamannafélaga 2026-2028
Til formanns
Linda Björk Gunnlaugsdóttir, Hestamannafélaginu Spretti
Til aðalstjórnar:
Þórhildur Katrín Stefánsdóttir, Hestamannafélaginu Glampa
Unnur Sigurpálsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Skagfirðingi
Sóley Margeirsdóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi
Sigurbjörn Eiríksson, Hestamannafélaginu Spretti
Ragnhildur Gísladóttir (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Ljúfi
Ólafur Gunnarsson, Hestamannafélaginu Jökli
Jón Þorberg Steindórsson (til vara í varastjórn), Hestamannafélaginu Geysi
Til varastjórnar
Reynir Atli Jónsson, Hestamannafélaginu Freyfaxa
Hilmar Guðmannsson, Hestamannafélaginu Fáki
Skv. gr. 4.6 í lögum LH er kjörnefnd heimilt að samþykkja framboð sem koma fram eftir að framboðsfresti lýkur, enda hafi ekki komið fram nægur fjöldi frambjóðenda. Nú háttar svo til að ekki hafa jafn margir boðið sig fram í varastjórn og kjósa skal og er því opið fyrir framboð í varastjórn og skulu þau berast til formanns kjörnefndar á netfangið (atli@landlogmenn.is).
Fréttasafn



















