A-landsliðshópur í hestaíþróttum 2026-2027

13. október 2026

Gríðarlega sterk keppnispör í öllum greinum

Ísólfur Líndal Þórisson landsliðsþjálfari A-landsliðs Íslands í hestaíþróttum hefur valið landsliðshóp fyrir starfsárið 2026-2027. Hópur 25 afreksknapa var kynntur í Íþróttamiðstöðinni í Laugardalnum, sem allir bjóða hesta sína til þátttöku á HM27.

Í hópnum eru fimm titilverjendur frá síðasta HM, þar af eru þrír knapar sem urðu heimsmeistarar í ungmennaflokki og verja sinn titil í flokki fullorðinna.


Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og aðrir til að sanna sig á undirbúningstímabili sem og á komandi keppnistímabili til að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og fara alla leið.

Landsliðsþjálfari mun fylgjast grannt með stöðu mála og ekki hika við að bæta knöpum í hópinn þegar ástæða þykir til.


Mikið starf er framundan í hópnum og verður boðið upp á ýmsa fræðslu í vetur. Hópurinn mun einnig taka þátt í fjáröflunarviðburðum landsliðsnefndar eins og Allra sterkustu og sýnikennslu landsliðsins sem haldin verður í haust.

A-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 25 knöpum:

 

Titilverjendur:

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Herði, heimsmeistari í T2

Árni Björn Pálsson, Fáki, heimsmeistari í T1

Kristján Árni Birgisson, Geysi, heimsmeistari í P1 og P2 ungmenna

Védís Huld Sigurðardóttir, Sleipni, heimsmeistari í V1 og T1 ungmenna

Jón Ársæll Bergmann, Geysi, heimsmeistari í F1, PP1 og samanlögðum fimmgangsgreinum ungmenna


Aðrir knapar

Ásmundur Ernir Snorrason, Geysi

Brynja Kristinsdóttir, Sörla

Daníel Gunnarsson, Skagfirðingi

Elvar Þormarsson, Geysi

Eyrún Ýr Pálsdóttir, Fáki

Flosi Ólafsson, Borgfirðingi

Glódís Rún Sigurðardóttir, Sleipni

Guðmunda Ellen Sigurðardóttir, Sleipni

Gústaf Ásgeir Hinriksson, Geysi

Hanna Rún Ingibergsdóttir, Geysi

Hans Þór Hilmarsson, Geysi

Haukur Baldvinsson, Sleipni

Helga Una Björnsdóttir, Þyt

Jakob Svavar Sigurðsson, Dreyra

Jóhanna Margrét Snorradóttir, Geysi

Sigurður Matthíasson, Fáki

Sigurður Sigurðarson, Geysi

Sigursteinn Sumarliðason, Sleipni

Viðar Ingólfsson, Fáki

Þorgeir Ólafsson, Geysi


Hópurinn er gríðarsterkur og margir gera tilkall til HM-sætis í hverri grein og það er ljóst að íslenska landsliðið mun valda verulegum usla þegar á hólminn er komið. Þess má til gamans geta að auk titilverjendanna fimm eru átta fyrrum heimsmeistarar í landsliðshópnum.


Til hamingju landsliðsknapar, þjálfari og hestafólk!

Fréttasafn

25. nóvember 2026
Í framhaldi af skemmtilegri kennslusýningu landsliðsins í Spretti á dögunum heldur landslið Íslands í hestaíþróttum áhugaverða sýnikennslu í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki fimmtudaginn 3. desember klukkan 19:00. Að venju koma frábærir knapar með frábæra hesta fram á sýnikennslunni og að þessu sinni eru það Daníel Gunnarsson skeiðknapi sem mætir með Strák frá Miðsitju og fer yfir uppbyggingu og framkvæmd gæðingaskeiðs ásamt Matthíasi Sigurðssyni úr U21-hópnum sem mætir með Gamm frá Efri-Þverá. Auk þeirra koma stjörnuparið Flosi Ólafsson og Brynja Kristinsdóttir sem eru um þessar mundir í hópi alsterkustu töltknapa í heimi. Með þeim kemur Herdís Björg Jóhannsdóttir fyrrum heimsmeistari í T1 ungmenna og er U21-landsliðsknapi. Þetta er frábært tækifæri til þess að skyggnast í reynslubanka knapa sem eru í fremstu röð á sínu sviði, fá innblástur og fræðslu. Viðburðir landsliðsins yfir veturinn, sýnikennslur og Allra sterkustu eru liðinu gríðalega mikilvæg í fjáröflun í vegferðinni að HM 2027 í Rieden í Þýskalandi og rennur allur aðgangseyrir til styrktar landsliðsins. Þriðja sýnikennslan verður svo haldin 7. janúar í Horseday-höllinni í Ölfusi. Aðgangseyrir 2.900 kr. (frítt inn fyrir 12 ára og yngri). Fjölmennum, fræðumst og leggjum okkar lóð á vogarskálarnar í leiðinni að HM.  Sjáumst á Króknum í næstu viku.
21. nóvember 2026
Á Uppskeruhátíð LH sem haldin var í Gamla bíó, voru krýndir bestu knapar ársins 2026 og keppnishestabú ársins valið. Knapi ársins er Jakob Svavar Sigurðsson Jakob Svavar átti stórkostlegt ár á keppnisbrautinni. Jakob Svavar sigraði B flokk á Landsmóti hestamanna á Kór frá Skálakoti með einkunnina 9,19. Þeir tilltu sér á toppinn eftir sérstaka forkeppni, sýndu mikið öryggi og voru á toppnum allt til enda. Jakob var jafnframt í 2. sæti í tölti á Landsmóti hestamanna á Skarpi frá Kýrholti og í 5. sæti í A flokki á Goða frá Bjarnarhöfn. Jakob Svavar er líka þrefaldur Íslandsmeistari. Hann sigraði tölt T1 á Skarpi frá Kýrholti með 9,61 í einkunn en þeir sigruðu einnig fjórgang með 8,20 í einkunn. Jakob sigraði slaktaumatölt T2 á Hrefnu frá Fákshólum með 8,88 í einkunn. Jakob Svavar Sigurðsson er knapi ársins 2026. Íþróttaknapi ársins er Á smundur Ernir Snorrason Ásmundur varð Landsmótssigurvegari í tölti á Hlökk frá Strandarhöfði þegar þau fóru í hæstu tölur sem gefnar hafa verið í tölti, 9,27 í forkeppni og 9,78 í úrslitum. Ásmundur er jafnframt samanlaðgður Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Hlökk. Ásmundur og Hlökk eru efst á heimslista FEIF í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Ásmundur var í þriðja sæti í fimmgangi á Íslandsmóti á Aski frá Holtsmúla auk þess sem þeir sigruðu sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Ásmundur Ernir Snorrason er íþróttaknapi ársins 2026. Gæðingaknapi ársins er Hans Þór Hilmarsson Hans Þór sigraði A flokk á Landsmóti hestamanna á eftirminnilegan hátt á Sindra frá Hjarðartúni með einkunina 9,13. Sýning þeirra einkenndist af fagmennsku og krafti og voru skeiðsprettir sýningarinnar sérstaklega eftirminnilegir. Hans Þór Hilmarsson er gæðingaknapi ársins 2026. Skeiðknapi ársins er Eyrún Ýr Pálsdóttir Eyrún vann 100 metra skeið á Landsmóti á hryssunni Friðsemd frá Kópavogi. Eyrún og Friðsemd unnu jafnframt 100 metra skeið á Íslandsmóti auk þess að hafa sigrað sömu grein á Reykjavíkurmeistaramóti. Eyrún og Friðsemd eiga besta tíma ársins í 100 metra skeiði, 7,30 sek. Eyrún Ýr Pálsdóttir er skeiðknapi ársins 2026. Efnilegasti knapi ársins er Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal Guðmar átti einstakt keppnisár, hann varð tvöfaldur Landsmótssigurvegari þegar hann sigraði B flokk ungmenna á Gretti frá Hólum og A flokk ungmenna á Kalsa frá Þúfum. Hann er einnig þrefaldur Íslandsmeistari í fjórgangi og tölti ungmenna á Gretti og í fimmgangi ungmenna á Kalsa frá Þúfum. Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal er efnilegasti knapi ársins 2026. Keppnishestabú ársins er Garðshorn á Þelamörk Garðshorn á Þelamörk hefur um árabil ræktað hross í fremstu röð. Frá búinu kemur einn afkastameski skeiðhestur samtímans, Kastor frá Garðshorni á Þelamörk. Kastor sigraði 250m skeið á Landsmóti hestamanna auk þess sem hann var í 4. sæti í A flokki gæðinga á sama móti. Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er fasmikill og mjúkur klárhestur sem endaði annar í B flokki á Landsmóti hestamanna. Garðshorn á Þelamörk er keppnishestabú ársins 2026 . Að valinu stendur valnefnd LH sem er skipuðuð fjölbreyttum hópi og þar eiga fulltrúa stjórn LH, GDLH, HÍDÍ, FT og fjölmiðlar. Við val á knöpum ársins skal tekið tillit til árangurs á árinu: ástundunar, prúðmennsku og íþróttamannlegrar framkomu innan vallar sem utan. Knapi ársins í hverjum flokki er valinn sá sem talinn er hafa náð framúrskarandi árangri á sviði reiðmennsku og frammistaða hans sé álitin hestaíþróttinni til framdráttar, hvort sem um er að ræða eitt afgerandi afrek, eða frábæran árangur í mörgum greinum á mörgum mótum. Við val þeirra sem viðurkenningar hljóta skal gaumgæfa árangur jafnt hér heima sem erlendis (WR mót og stórmót).
20. nóvember 2026
Matthias Rettig dýralæknir verður hluti af landsliðsteymi LH fram yfir næstu þrjú Heimsmeistaramót
16. nóvember 2026
Styttist í uppskeruhátíð
13. nóvember 2026
Hestamannafélagið Sleipnir mun halda Íslandsmót fullorðinna og ungmenna 16.-20. júní 2027
11. nóvember 2026
Allir í Samskipahöllina annað kvöld
10. nóvember 2026
Knapar ársins verða heiðraðir á Uppskeruhátíð hestafólks
6. nóvember 2026
Heiðursviðurkenningar ÍSÍ veittar á Landsþingi LH
5. nóvember 2026
Gullmerki veitt á Landsþingi
3. nóvember 2026
Könnun til félagsmanna
Lesa meira