U21 landsliðshópurinn 2026-2027 kynntur
Hörð samkeppni um HM sæti

Sigvaldi Lárus Guðmundsson landsliðsþjálfari U21 landsliðs Íslands í hestaíþróttum hefur valið landsliðshóp sinn fyrir starfsárið 2026-2027. Hópurinn var kynntur í húsakynnum Icelandair Cargo í Hafnarfirði.
Á næsta ári er stóra verkefni landsliðsins HM íslenska hestsins í Rieden í Þýskalandi. Þangað ætlum við með okkar allra sterkustu keppnispör. Einungis fimm sæti eru í boði á HM í ungmennaflokki þannig að baráttan um sæti á HM er hörð. U21-landsliðshópurinn er skipaður knöpum sem verða 17-21 árs á keppnisárinu 2027, yngstu knapar hópsins verða því á síðasta ári í unglingaflokki en aðrir knapar í ungmennaflokki.
Að þessu sinni eru valdir 20 knapar sem þykja skara fram úr að mati landsliðsþjálfara og bjóða hesta í verkefnið.
Rétt er að taka fram að knapar sem ekki eru valdir að þessu sinni eiga jafn mikinn möguleika og allir aðrir til að sanna sig á undirbúningstímabili sem og á komandi keppnistímabili til að ávinna sér sæti í landsliðshópnum og fara alla leið.
Landsliðsþjálfari mun fylgjast grannt með stöðu mála og ekki hika við að bæta knöpum í hópinn þegar ástæða þykir til.
Mikið starf er framundan í hópnum og í samstarfi við A-landsliðshópinn verður boðið upp á ýmsa fræðslu í vetur. Hópurinn mun einnig taka þátt í fjáröflunarviðburðum landsliðsnefndar eins og Allra sterkustu og sýnikennslu landsliðsins sem haldin verða í haust.
U21-landsliðshópurinn er skipaður eftirfarandi 20 knöpum:
Apríl Björk Þórisdótti, Spretti
Dagur Sigurðarson, Geysi
Eik Elvarsdóttir, Geysi
Elísabet Líf Sigvaldadóttir, Geysi
Elsa Kristín Grétarsdóttir, Sleipni
Elva Rún Jónsdóttir, Spretti
Fanndís Helgadóttir, Sörla
Gabríel Liljendal Friðfinnsson, Fáki
Guðmar Hólm Íslólfsson Líndal, Þyt
Guðný Dís Jónsdóttir, Spretti
Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir, Snæfellingi
Herdís Björg Jóhannsdóttir, Spretti
Hjördís Halla Þórarinsdóttir, Skagfirðingi
Kolbrún Sif Sindradóttir, Sörla
Kristín Eir Holaker Hauksdóttir, Borgfirðingi
Lilja Rún Sigurjónsdóttir, Fáki
Loftur Breki Hauksson, Sleipni
Matthías Sigurðsson, Fáki
Ragnar Snær Viðarsson, Fáki
Sara Dís Snorradóttir, Sörla
Til hamingju landsliðsknapar, þjálfari og hestafólk!
Fréttasafn



















