Erlendur Árnason fylgir landsliðinu til HM
Erlendur Árnason járningamaður verður hluti af landsliðsteyminu í fram yfir HM 2027

Erlendur Árnason, oftast kallaður Elli á Skíðbakka, verður hluti af þjálfara- og afreksteymi Íslands í undirbúningi fyrir heimsmeistaramót íslenska hestsins 2027. Mótið fer fram í Rieden í Bæjaralandi í Þýskalandi dagana 27. júlí til 1. ágúst. Erlendur verður járningamaður liðsins, en hann hefur fylgt landsliðinu á síðustu fjórum heimsmeistaramótum. Hann er einn reyndasti keppnis- og kynbótajárningamaður landsins og hefur hann járnað stóran hluta þeirra hrossa sem keppt hafa á HM síðustu ár, sem nýtist vel því hann þekkir hestana og þarfir þeirra.
Elli ólst upp í sveit, nam við Hóla og starfaði í Þýskalandi við þjálfun og tamningar áður en hann sneri sér alfarið að járningum eftir heimkomuna í kringum 2004. Hlutverk Erlends á mótum nær langt út fyrir járningar. Hann sér um fóta- og búnaðarskoðun hestanna og tekur þannig álagið af knöpunum, en reynsla hans sem dómari kemur þar að góðum notum. Auk þess leysir hann ýmis verkefni í kringum liðið og hleypur í skarðið þegar eitthvað kemur upp á. Reynsla járningamanns getur skipt sköpum á ögurstundu, til dæmis þegar skeifa fer undan hesti rétt fyrir keppni og hver mínúta skiptir máli.
Elli er liðsmaður af bestu gerð og LH fagnar því að Elli sé tilbúinn í slaginn. Það er ljóst að íslenska landsliðið ætlar sér stóra hluti á HM í Rieden og það styrkir þá vegferð að hafa einn reynslumesta járningamann landsins með í för.
Fréttasafn



















