Jón Þ Steindórsson býður sig fram til aðalstjórnar LH
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028
Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
Kæru hestamenn.
Ég býð mig fram til stjórnar Landssambands hestamannafélaga vegna þess að ég vil leggja mitt af mörkum til að efla hestamennskuna og gæta sameiginlegra hagsmuna okkar. Ég vil að LH sé öflugur málsvari hestamanna og starfi í nánu sambandi við aðildarfélögin. Forysta sambandsins þarf að hlusta, miðla upplýsingum og tryggja að sjónarmið félagsmanna hafi vægi þegar ákvarðanir eru teknar.
Mín helstu áherslumál eru:
• Gagnsæi og vönduð stjórnsýsla. Skýrar upplýsingar um ákvarðanir, fjármál og samninga sem varða sameiginlega hagsmuni hreyfingarinnar.
• Öflug hestamannafélög. Stuðningur við sjálfboðaliða, mótahald og daglegt félagsstarf um allt land.
• Reiðleiðir og aðstaða. Markviss hagsmunagæsla fyrir varðveislu reiðleiða, öryggi hestamanna og uppbyggingu aðstöðu.
• Breið þátttaka. Rými fyrir börn, ungmenni, frístundafólk og keppnisfólk, með ólíkar þarfir og metnað
Ég tel að málefnaleg umræða, skýr svör og vilji til samstarfs séu grunnur að trausti. Ég vil taka þátt í stjórn sem ræðir málin af hreinskilni, tekur ábendingum alvarlega og fylgir ákvörðunum eftir. Hestamennskan byggist á fólkinu í félögunum, starfi þeirra og áhuga á íslenska hestinum. Það starf á að njóta stuðnings og virðingar í öllum verkefnum LH.
Ég óska eftir stuðningi ykkar til að vinna að þessum málum í stjórn Landssambands hestamannafélaga.
Jón Þorberg Steindórsson
Fréttasafn



















