Vel heppnuð Menntaráðstefna LH og FEIF
Menntaráðstefna FEIF og LH var haldin í Skagafirði dagana 23. til 25. september. Ráðstefnan var mjög vel sótt, en þátttakendur voru um 120 og komu víða að úr heiminum.
Meginþema ráðstefnunnar var „transitions“ eða skiptingar af öllu tagi - gangskiptingar, gangsetning, hraðabreytingar, upphaf skeiðþjálfunar og niðurtaka á skeið í keppni ásamt umfjöllun um velferð keppnishesta.
Aðalkennarar og fyrirlesarar ráðstefnunnar voru Eyjólfur Ísólfsson, Árni Björn Pálsson, Mette Mannseth, Þórarinn Eymundsson, Ísólfur Líndal Þórisson, Þorsteinn Björnsson og Sigríður Björnsdóttir. Þar að auki tóku nemendur Háskóla Íslands á Hólum þátt í ráðstefnunni ásamt skólahestunum og reiðkennurum skólans.
Þátttakendur höfðu tækifæri til að senda spurningar til kennara og fyrirlesara en þátttakendur nýttu það tækifæri vel. Þar að auki var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og daglega hittust hóparnir til að ræða fyrirfram ákveðin umræðuefni sem endurspegluðu viðfangsefni ráðstefnunnar.
Ráðstefnunni lauk á líflegum pallborðsumræðum þar sem kennarar og fyrirlesarar sátu fyrir svörum. Mikil ánægja var á meðal þátttakenda með menntaráðstefnuna, erindin voru fjölbreytt og mjög áhugaverð.
Það var menntanefnd LH sem átti veg og vanda að allri skipulagningu viðburðarins og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Menntanefnd LH skipa Mette Mannseth formaður, Friðdóra Friðriksdóttir, Herdís Reynisdóttir, Karen Woodrow, Magnús Lárusson, Reynir Atli Jónsson og Sylvía Sigurbjörnsdóttir.
Fréttasafn









































