Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun LH 2026-2027

17. september 2026

Hæfileikamótun LH er fyrir unglinga fædd 2010-2013

Þróun Hæfileikamótunar LH hefur verið mikil undanfarin ár. Á þessu starfsári verður boðið upp á tvo hópa líkt og undanfarin ár.

Þetta er gert til þess að veita sem flestum efnilegum knöpum tækifæri til þess að komast í umhverfi Hæfileikamótunar, efla starfið og á sama tíma að veita hverjum knapa enn meiri aðstoð en áður.


Vetrarstarfið í haust hefst á foreldrafundi og svo ferð norður að Háskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem nemendur fá innsýn í námið á Hólum, sýnikennslu og reiðkennslu hjá kennurum við skólann ásamt því að fá helgi til þess að kynnast og hrista saman hópinn.
 

Eftir áramót eru tvær vinnuhelgar í kennslu á eigin hestum undir umsjón yfirþjálfara auk bóklegrar kennslu í formi fyrirlestra á tímabilinu. Þar að auki taka iðkendur Hæfileikamótunar þátt í viðburðum á vegum landsliðsins í hestaíþróttum.
 

Í hæfileikamótun LH eru ungir og efnilegir framtíðarknapar Íslands. Á liðnum keppnisárum hafa knapar sem taka þátt í hæfileikamótun LH staðið framarlega í öllum greinum á stærstu mótum ársins í unglingaflokki.


Tilvist hæfileikamótunar er orðin að stórum þætti í afreksmálum Landssambands hestamannafélaga. Það er mjög mikilvægt að aðstoða unga afreksknapa við að verða betri þjálfarar og reiðmenn en einnig að gefa þeim tækifæri til að kynnast landsliðsumhverfinu og verða að flottum fyrirmyndum fyrir aðra.


Fyrir umgjörð afreksstarfsins er þátttaka og stuðningur foreldra mikilvægur og því leggur afreksteymi LH og yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH ríka áherslu á góð samskipti við foreldra og aðstoð þeirra á starfshelgum.


Yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH er Vigdís Matthíasdóttir.


Umsóknarfrestur er 30. september 2026


Fréttasafn

31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
Lesa meira