Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH næstu tvö árin

16. september 2026

Vigdís Matthíasdóttir er  nýr yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH

Það er mikið ánægjuefni að tilkynna að gengið hefur verið frá ráðningu Vigdísar Matthíasdóttur, til tveggja ára, sem yfirþjálfara Hæfileikamótunar LH. Vigdís mun bera ábyrgð á kennslu og utanumhaldi í Hæfileikamótun LH og hafa með sér aðstoðarþjálfara úr efstu hillu íþróttarinnar á vinnuhelgum hópanna. Sigurbjörn Eiríksson formaður landsliðsnefndar og Vigdís hafa undirritað samning þess efnis.


Vigdís hefur áralanga reynslu af kennslu, þjálfun, leiðsögn og starfi með börnum og unglingum bæði hérlendis og erlendis, auk reynslu af stjórnun, rekstri og þjónustu og hún er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.


Frá árinu 2021 hef hefur hún starfað við kennslu í barna- og unglingastarfi Hestamannafélagsins Fáks þar sem hún hefur kennt börnum og unglingum á ólíkum aldri og getustigum, leiðbeint þeim í reiðmennsku og stutt við framfarir þeirra með jákvæðri og einstaklingsmiðaðri nálgun. Jafnframt  hefur hún sinnt umfangsmikilli keppnisþjálfun ungra knapa og fylgt þeim á Landsmót, Norðurlandamót og Heimsmeistaramót og verið þjálfari á Youth Cup.


Mikil aðsókn hefur verið síðustu ár í Hæfileikamótun LH og verður opnað fyrir umsóknir efnilegra knapa í unglingaflokki á næstu dögum. Dagskrá Hæfileikamótunar LH verður að venju metnaðarfull og spennandi þar sem lykiláhersla er lögð á íþróttina og knapa sem íþróttafólk. Knapar fá aðstoð og fræðslu við skipulag þjálfunar, verklega kennslu og utanumhald ásamt því að kynnast afreksumhverfi íþróttarinnar.


LH hlakkar til samstarfsins við Vigdísi og að fylgjast með framvindu okkar efnilegustu knapa í unglingaflokki. 

Fréttasafn

31. október 2026
Ný stjórn LH kjörin á Landsþingi
31. október 2026
Ragnhildur Gísladóttir dregur framboð til aðalstjórnar til baka
31. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Þórhildur Katrín Stefánsdóttir – Hestamannafélagið Hornfirðingur
30. október 2026
Eftirfarandi framboð til varastjórnar bárust kjörnefnd
29. október 2026
Valnefnd óskar eftir keppnisárangri ræktunarbúa
29. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Hilmar Guðmannsson – Hestamannafélagið Fákur
29. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Ragnhildur Gísladóttir – Hestamannafélagið Ljúfur
28. október 2026
Framboð í varastjórn LH 2026 – 2028 Reynir Atli Jónsson – Hestamannafélagið Freyfaxi
27. október 2026
Hugrenningar formanns LH, Lindu B. Gunnlaugsdóttur
27. október 2026
Framboð í aðalstjórn LH 2026 – 2028 Jón Þorberg Steindórsson – Hestamannafélagið Geysir
Lesa meira