Framboð til forseta og framkvæmdastjórnar ÍSÍ

28. apríl 2025

Á 77. Íþróttaþingi ÍSÍ, sem fram fer dagana 16. og 17. maí nk. á Hótel Natura, verður kosið um forseta ÍSÍ til fjögurra ára og um sjö meðstjórnendur í framkvæmdastjórn ÍSÍ, til fjögurra ára. Skilafrestur framboða rann út föstudaginn 25. apríl sl. kl. 16:00.

Til kjörnefndar bárust fimm framboð til embættis forseta ÍSÍ og níu framboð til setu í framkvæmdastjórn ÍSÍ.  Kjörnefnd ÍSÍ hefur úrskurðað öll innsend framboð gild.

Við hestamenn eigum frábæran fulltrúa á meðal frambjóðenda en það er hún Þórdís Anna Gylfadóttir, (LH/UMSK) en hún býður sig fram sem meðstjórnanda í framkvæmdastjórn ÍSÍ.

Til að framboð teljist löglegt skal eitt ólympískt sérsamband og eitt héraðssamband/íþróttabandalag hafa lýst yfir stuðningi við framboðið. Þess má geta að frambjóðendur eru ekki fulltrúar viðkomandi sambandsaðila og allir stjórnarmenn ÍSÍ eru óháðir og fulltrúar allrar íþróttahreyfingarinnar.

Frambjóðendur til forseta ÍSÍ eru eftirfarandi (í stafrófsröð):

  • Brynjar Karl Sigurðsson, (KSÍ/UÍA)
  • Magnús Ragnarsson, (TSÍ/ÍBR)
  • Olga Bjarnadóttir, (FSÍ/HSK)
  • Valdimar Leó Friðriksson, (LSÍ/UMSK)
  • Willum Þór Þórsson, (SSÍ/UMSK)

Frambjóðendur í sjö sæti meðstjórnenda í framkvæmdastjórn ÍSÍ eru eftirfarandi (í stafrófsröð):

  • Ásmundur Friðriksson, (KSÍ/ÍRB)
  • Heimir Örn Árnason, (HSÍ/ÍBA)
  • Kári Mímisson, (BTÍ/ÍBR)
  • Sigurjón Sigurðsson, (HSÍ/UMSK)
  • Trausti Gylfason, (SSÍ/ÍA)
  • Tryggvi M. Þórðarson, (AKÍS/ÍBH)
  • Viðar Garðarsson, (BLÍ/ÍBR)
  • Þórdís Anna Gylfadóttir, (LH/UMSK)
  • Þórey Edda Elísdóttir, (BLÍ/USVH)

 Nánar er fjallað um kjör til framkvæmdastjórnar ÍSÍ í 17. grein laga ÍSÍ.  

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira