Glæsilegir stóðhestar í veltunni!
Mikilvægasti fjáröflunarviðburður landsliðsins, ALLRA STERKUSTU fer fram laugardaginn 19. apríl næstkomandi. Þar verður hin æsispennandi Stóðhestavelta landsliðsins að sjálfsögðu á sínum stað. Hver veit nema úr henni komi framtíðar heimsmeistari?
Við treystum á hestamenn til að koma og eiga glaðan dag með okkur, kaupa sér toll og sjá marga af okkar öflugustu knöpum etja kappi.
Hátt í 100 úrvals stóðhestar sem allir ættu að vilja setja undir taka þátt í veltunni og er það ómentanlegt hversu vel stóðhestaeigendur standa við bakið á landsliðinu.
Fyrirkomulag Stóðhestaveltunnar 2025 er þannig að sala á tollum opnar kl 12:00 Laugardaginn 19. apríl á vef LH. Milli klukkan 17:00 og 19:00 veður hægt að draga tolla í Samskipahöllinni, gegn framvísun greiðslukvittunar. Þeir sem hafa ekki kost á að mæta og draga toll eða fá einhvern fyrir sig í verkefnið, geta óskað eftir því að starfsmenn LH dragi tollinn.
Miðaverð fyrir hvern toll er 70.000 kr. Athugið að að girðinga-, hús-, eða sæðingagjald er ekki innifalið.
Ekki láta þitt eftir liggja, tryggðu þér toll og hjálpaðu liðinu að komast einu skrefi nær Gullinu á HM í Sviss!
Áfram Ísland!
Húsið opnar kl 17 - tryggðu þér miða í forsölu hér á heimasíðu LH
Við kynnum næstu 10 stóðhestana til leiks:
Hér eru upplýsingar um aðra hesta í veltunni
Fréttasafn






Styrktaraðilar







