Opið er fyrir umsóknir í Hæfileikamótun veturinn 2024-2025

4. september 2024

Hæfileikamótun LH er fyrir krakka sem verða á aldrinum 14-17 ára á næsta keppnistímabili (fædd 2008-2011). Yfirþjálfari Hæfileikamótunar er Sigvaldi Lárus Guðmundsson reiðkennari.

Þróun Hæfileikamótunar LH hefur verið mikil undanfarin ár. Á þessu starfsári verður boðið upp á tvo hópa líkt og í fyrra. Þetta er gert til þess að veita sem flestum efnilegum knöpum tækifæri til þess að komast í umhverfi hæfileikamótunar, efla starfið og á sama tíma að veita hverjum knapa enn meiri aðstoð en áður.

Vetrarstarfið hefst á ferð norður að Háskólanum á Hólum í Hjaltadal þar sem nemendur fá innsýn í námið á Hólum, sýnikennslu og reiðkennslu hjá kennurum við skólann ásamt því að fá helgi til þess að kynnast og hrista saman hópinn.

Eftir áramót eru tvær vinnuhelgar í kennslu á eigin hestum undir umsjón yfirþjálfara ásamt því að hver knapi skilar tvisvar á tímabilinu myndbandi af sér með keppnishesti sínum á velli og fær endurgjöf og í framhaldinu aðstoð með þjálfun inn í mótin. Þetta verða vormótin annarsvegar og svo kringum Íslandsmót hinsvegar. Þar að auki taka iðkendur hæfileikamótunar þátt í viðburðum á vegum landsliðsins í hestaíþróttum.

Í hæfileikamótun eru ungir og efnilegir framtíðarknapar Íslands. Á liðnu keppnisári hafa knapar sem taka þátt í hæfileikamótun LH staðið framarlega í öllum greinum á stærstu mótum ársins og tölfræðin er afar skýr. Tilvist hæfileikamótunar er orðin að stórum þætti í afreksmálum Landssambands hestamannafélaga. Það er mjög mikilvægt að aðstoða unga afreksknapa við að verða betri þjálfarar og reiðmenn en einnig að gefa þeim tækifæri til að kynnast landsliðsumhverfinu og verða að flottum fyrirmyndum fyrir aðra.

Tekið er á móti umsóknum í hæfileikamótun LH 2024-2025 á vef LH.

Umsóknarfrestur er 15. september 2024

Fréttasafn

6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
23. júní 2026
Ingimar Sveinsson, heiðursfélagi og gullmerkishafi Landssambands hestamannafélaga er látinn, 98 ára að aldri. Ingimar var hestamaður, bóndi, kennari og frumkvöðull í hestvænum tamningaraðferðum hérlendis. Ingimar fæddist 27. febrúar 1928 á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði og ólst þar upp. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson, bóndi og oddviti á Egilsstöðum, og Sigríður Fanney Jónsdóttir, húsfreyja og hótelhaldari á Egilsstöðum. Ingimar lauk stúdentsprófi frá MA 1948, BSc.-prófi í búvísindum frá Washington State University, Pullman í Washington-ríki í Bandaríkjunum 1952, dvaldi við nám í Danmörku sumarið 1986, í Þýskalandi 1993 og í Kanada og Bandaríkjunum 1995. Ingimar var bóndi á Egilsstöðum (á Egilsstaðabúinu) 1952-86 en gerðist kennari við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, m.a. í hrossarækt og tamningum, frá ársbyrjun 1986 til vors 1998. Jafnframt stundaði hann þar tilraunir og rannsóknir í hrossarækt. Hann kynnti sér ýmsar erlendar tamningaaðferðir hrossa, sem hann aðlagaði fyrir íslenska hestinn. Ingimar hélt fjölda tamninganámskeiða um allt land og víða erlendis, auk þess að flytja erindi og halda fræðslunámskeið um íslenska hestinn. Ingimar var stofnfélagi Hestamannafélagsins Freyfaxa á Fljótsdalshéraði og sat í stjórn þess í 25 ár, þar af formaður í fimm ár. Hann var stofnfélagi og fyrsti formaður ungmenna- og íþróttafélagsins Hattar á Egilsstöðum. Sat í stjórn Kaupfélags Héraðsbúa, var í nokkur ár formaður Bændafélags Fljótsdalshéraðs, og í stjórn Ræktunarsambands Austur-Héraðs og formaður og framkvæmdastjóri þess um skeið. Ingimar skrifaði fjölda greina í blöð og tímarit og kennslubækur í hrossarækt. Ritaði einnig bókina Hrossafræði Ingimars, sem var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Hagþenkis árið 2010. Landssamband hestamannafélaga vottar fjölskyldu og vinum Ingimars samúð.
22. júní 2026
Skráning opin til miðnættis 23.júní
19. júní 2026
Fyrstu Íslandsmeistarnir hafa verið krýndir á Íslandsmótinu sem fram fer á Sörlastöðum í Hafnarfirði.
19. júní 2026
Hinn geysivinsæli viðburður FEIF Youth Cup (FYCup) 2026 fer að þessu sinni fram í Rieden í Þýskalandi dagana 13. til 19. júlí. Viðburðurinn er fyrir knapa á aldrinum 14-17 ára á árinu sem vilja öðlast keppnisreynslu á erlendri grundu. Áhersla FYCup er á teymisvinnu, íþróttamennsku, bætta reiðfærni og vináttu þvert á menningu. Ísland fer með sjö keppendur á FYCup að þessu sinni : Anita Liv Snævarsdóttir, Ljúfi Aníta Líf Magnúsdóttir, Herði Jóhanna Dýrleif Guðjónsdóttir, Spretti Rebecca Luise Lehmann, Snæfellingi Sigríður Fjóla Aradóttir, Herði Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir, Skagfirðingi Unnur Rós Ármannsdóttir, Háfeti Íslensku keppendurnir fá leigðan hest á meðan á mótinu stendur og hópnum fylgir Dagbjört Hulda Guðbjörnsdóttir formaður Æskulýðsnefndar LH. Undirbúningur ferðarinnar er í fullum gangi og mikil tilhlökkun í hópnum.
16. júní 2026
Pistill frá formanni LH
10. júní 2026
Lágmörk inn á Íslandsmót lækkuð
1. júní 2026
Skógarhólar hinn geysivinsæli áningarstaður hestamanna í þjóðgarðinum á Þingvöllum hefur fengið góða andlitslyftingu á síðustu misserum.
Lesa meira