Samkomulag um gerð reiðstíga

7. apríl 2022

Vegagerðin og Landssamband hestamannafélaga skrifuðu þann 6. apríl undir samkomulag um gerð og útfærslur reiðstíga með stofn- og tengivegum sem lagðir eru bundnu slitlagi. Samkomulagið felur í sér að Vegagerðin skuldbindur sig til að gera reiðfært meðfram vegi þegar lagt er bundið slitlag á malarveg sem nýst hefur sem reiðstígur og er sem slíkur í gildandi skipulagi sveitarfélags. 

Samkomulagið kemur í stað samkomulags sem gert var fyrir hartnær 40 árum. 
Samhliða undirritun samkomulagsins gefur Vegagerðin og reiðveganefnd LH út endurgerðar leiðbeiningar um reiðstíga:  Reiðstígar - gerð og uppbygging  . Í leiðbeiningum kemur fram allt það er snýr að gerð reiðstíga og hvernig þeir skulu útfærðir miðað við aðstæður hverju sinni.

Guðni Halldórsson formaður Landssambands hestamannafélaga og Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar skrifuðu undir samkomulagið í sólinni í Garðabæ. Á mynd með þeim eru þeir Hákon Hákonarson formaður reiðveganefndar landsambandsins og Pálmi Þór Sævarsson svæðistjóri Vegagerðarinnar á Vestursvæði sem komu að gerð samkomulagsins.
Ásamt þeim komu að gerð leiðbeininganna Haraldur Sigursteinsson fyrrverandi starfsmaður hjá Vegagerðinni sem fylgdi þessu verki áfram ásamt starfsmönnum Vegagerðarinnar núverandi og þeim Halldóri Halldórssyni og Sæmundi Eiríkssyni frá Landssambandi hestamannafélaga.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira