Umsóknir um þátttöku á Norðurlandamóti 2022

15. mars 2022

Landsliðsþjálfarar LH óska eftir upplýsingum um knapa og hesta sem gefa kost á sér til þátttöku á Norðurlandamóti 2022.

Á NM er keppt í íþróttakeppni og gæðingakeppni í flokki fullorðinna, ungmenna og unglinga.

Norðurlandamótið verður haldið dagana 9. til 14. ágúst í Mariehamn á Álandseyjum, það eru Finnar sem halda mótið.

Sjá kynningu frá mótinu hér:  https://www.lhhestar.is/static/files/nc-2022-1-.pdf

Þeir sem gefa kost á sér til þátttöku og hafa hest í boði, hvort sem er á Íslandi eða erlendis, eru beðnir um að fylla út upplýsingar í eyðublaði á vef LH. Beðið er um keppnisárangur hests, hvar hann er staðsettur og myndband af hestinum.

Ef knapi hefur fleiri en einn hest í boði er hann beðinn um að fylla út sérstaka umsókn fyrir hvern hest.

Athugið að knapar bera kostnað við ferðir og gistingu og eru hvattir til að sækja sér styrki fyrir mótið.

UMSÓKNARFRESTUR ER 27. MARS.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira