Áhugamannamót Íslands 2025

24. mars 2025

Áhugamannamót Íslands 2025 verður haldið á félagssvæði Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði 20.-22. júní næstkomandi.

Með tilkomu nýrrar reiðhallar í Hafnarfirði er félagssvæði Sörlafélaga orðið hið glæsilegasta og öll aðstaða til fyrirmyndar fyrir hesta og menn.

Sörli mun einnig halda Íslandsmót barna og unglinga síðar í sumar ásamt því að Hafnarfjarðarmeistaramótið í maí er WR mót og því nóg um að vera í Firðinum fyrir allt hestafólk.

Reglugerðin um Áhugamannamót Íslands var á landsþingi LH í haust rýmkuð talsvert og forsendur mótsins því opnari en áður og vonir standa til þess að mótið verði haldið með miklum myndarbrag og að það nái almennilegu flugi.

Á Áhugamannamóti Íslands verður keppt í 1. 2. og 3. flokki og þátttökurétt á mótinu hafa allir knapar 22 ára og eldri sem ekki hafa keppt í meistaraflokki á WR mótum á síðastliðnum þremur árum.

Fréttasafn

3. apríl 2026
Heildarlisti hesta í stóðhestaveltu landsliðsins
Eftir Berglind Karlsdóttir 3. apríl 2026
Tollur undir Skugga frá Sumarliðabæ er í Stóðhestaveltunni
2. apríl 2026
Tollur undir Náttfara frá Varmalæk er í Stóðhestaveltunni
1. apríl 2026
Tollur undir Kolskegg frá Kjarnholtum er í Stóðhestaveltunni
1. apríl 2026
1. apríl taka gildi breytingar á reglum sem samþykktar voru á FEIF þingi
1. apríl 2026
Fryst sæði í stóðhestaveltu Landsliðs Íslands í hestaíþróttum
31. mars 2026
Tollur undir Adrían frá Garðshorni á Þelamörk er í Stóðhestaveltunni
30. mars 2026
Tollur undir Skýr frá Skálakoti er í Stóðhestaveltunni
28. mars 2026
Tollur undir Álfaklett er í Stóðhestaveltunni
26. mars 2026
Svarti-Skuggi og fleiri gæðingar í Stóðhestaveltu landsliðsins
Lesa meira