Allra sterkustu - Takk fyrir stuðninginn

15. apríl 2026

Takk fyrir stuðninginn

Kæru hestamenn, takk kærlega fyrir samveruna og samvinnuna á ALLRA STERKUSTU sem haldinn var í glænýrri og glæsilegri reiðhöll Hestamannafélagsins Sörla á Sörlastöðum þann 4. apríl. Bekkirnir í höllinni voru þétt setnir og viljum við þakka gestum fyrir komuna. Allra sterkustu er mikilvægasta fjáröflun landsliðsins fyrir Norðurlandamót og skiptir það sköpum fyrir afreksstarf LH að finna þenna mikla áhuga og stuðning úr greininni.


Viðburður eins og þessi gerist ekki af sjáflu sér. Að baki honum standa óteljandi klukkustundir sem sjálfboðaliðar ljáðu verkefninu, fyrirtæki sem lögðu til styrki, aðföng eða happdrættisvinninga og stóðhestaeigendur sem gáfu tolla í stóðhestaveltuna. Þá lögðu stjórn, skrifstofa, landsliðsnefnd, framkvæmdanefnd, landsliðsþjálfarar og landsliðsknaparnir sjálfir dag við nótt að undirbúa og framkvæma þennan glæsilega viðburð. Hjörvar Ágústsson og Hulda Gústafsdóttir voru þulir mótsins, dómarar frá HÍDÍ og GDLH gáfu vinnu sína og Jonni Kokkur sá um að enginn væri svangur.


Dregið hefur verið úr happdrættinu og má sjá vinningstölur hér.


Takk kærlega allir sem komu á staðinn eða studdu við viðburðinn með einhverjum hætti. Án ykkar væri þetta ekki hægt.

Eftirtalin fyrirtæki og einstaklingar lögðu lóð á vogaskálarnar:

  • Lífland
  • Top Reiter
  • Bláa lónið
  • OJK
  • Stóðhestaeigendur sem gáfu tolla
  • Boli
  • Esja
  • Garri
  • Nói Siríus
  • Ölgerðin
  • Kaffi Krókur
  • Hestamannafélagið Sörli
  • Eiðfaxi TV
  • Kaupfélag Skagfirðinga
  • Fána
  • Ástund
  • Horseday
  • Hótel Rangá
  • Landsmót 2026
  • Verdi
  • GDLH dómarar
  • HÍDÍ dómarar
  • Hjörvar Ágústsson, kynnir
  • Hulda Gústafsdóttir, kynnir
  • Jóhanna Magnúsdóttir, öryggisstjóri
  • Jón Ólafur Guðmundsson, kokkur
  • Meistaradeild Líflands
  • Drífa Dan skreytingar
  • Gestir, knapar og starfsfólk

Fréttasafn

28. ágúst 2026
Við yfirferð úrslita frá Íslandsmóti barna og unglinga 2026 kom í ljós að ranglega var tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki. Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna. Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026. Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.  Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.
27. ágúst 2026
Við þurfum að stækka hóp gæðingadómara!
21. ágúst 2026
Leitað er eftir metnaðarfullum reiðkennara sem hefur áhuga á að starfa með unglingum.
19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
Lesa meira