FEIF Youth Camp mun fara fram á Íslandi í sumar

5. febrúar 2025

FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 9.-14. júlí 2025 á Hvanneyri.

FEIF Youth Camp eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 14-17 ára á árinu. Markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir hestamenningu annarra þjóða, auka skilning á menningarlegum mun og að hitta ungt fólk með sama áhugamál. Sumarbúðirnar verða að þessu sinni haldnar á Íslandi.

Dagskráin verður ákaflega spennandi en meðal annars verður boðið uppá: 

  • Reiðtúra í fallegri náttúru
  • Fyrirlestra
  • Sýnikennslu
  • Kynningu á Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri
  • Gönguferðir
  • Sund
  • Og margt fleira!


Athugið að sumarbúðirnar eru alþjóðlegar og þar verður öll dagskrá á ensku, þetta er því frábært tækifæri til að efla enskuna, læra meira um hesta, kynnast nýjum krökkum og eignast nýja vini.

Umsóknarfrestur til þátttöku fyrir Íslands hönd er til 20. mars 2025 og hægt er að nálgast umsóknina með því að smella hér.

Kostnaður við búðirnar er 660 evrur en inní því er fæði, allar ferðir og afþreying. Þátttakendur þurfa að koma sér í Borgarnes á eigin kostnað. 

Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið joninasif@lhhestar.is.

Fréttasafn

19. ágúst 2026
Landsþing Landssambands hestamanna verður haldið í Hveragerði dagana 30. til 31. október
17. ágúst 2026
Góð stemning í íslenska hópnum á Norðurlandamóti
4. ágúst 2026
Vel heppnað Íslandsmót hjá Sleipni
29. júlí 2026
Mótssvæði HM 2027 mátað
21. júlí 2026
Íslandsmót barna og unglinga hefst á morgun
20. júlí 2026
Norðurlandamót á Margaretehof í Svíþjóð
17. júlí 2026
Vel heppnuðu Landsmóti á Hólum lokið
6. júlí 2026
Gleðilega hátíð!
2. júlí 2026
Vel heppnað Íslandsmót í Sörla
1. júlí 2026
Alþingi bregst öryggi þúsunda hestamanna og lætur elstu samgönguinnviði þjóðarinnar sitja eftir.
Lesa meira